Toblerone karamelluís

Uppskrift: Gerum daginn girnilegan

Það þekkja flestir klassíska Toblerone ísinn og hér kemur skemmtileg útfærsla! Karamella gerir þetta enn betra og þessi blanda er dásamleg.

Hráefni


Ísinn


  • 5 stk egg
  • 50 g sykur
  • 50 g púðursykur
  • 2 tsk vanillusykur
  • 400 ml þeyttur rjómi
  • 150 g Toblerone saxað
  • karamellusósa (sjá uppskrift)
  • Werther´s karamellupopp


Werthers karamellusósa hráefni


  • 200 g Werthers karamellur (mjúkar)
  • 100 ml rjómi


Leiðbeiningar


Ísinn aðferð


  1. Byrjið á því að útbúa karamellusósuna (sjá uppskrift að neðan) og leyfið henni að ná stofuhita á meðan annað er undirbúið
  2. Þeytið rjómann og saxið Toblerone, leggið til hliðar.
  3. Stífþeytið eggjahvíturnar og geymið.
  4. Þeytið eggjarauður, sykur og púðursykur saman í nokkrar mínútur þar létt og ljós blanda myndast, bætið þá vanillusykrinum saman við.
  5. Vefjið næst þeytta rjómanum varlega saman við eggjablönduna með sleikju, því næst Toblerone súkkulaðinu og stífþeyttu eggjahvítunum að lokum.
  6. Setjið bökunarpappír í botninn á um 20 cm smelluformi og hellið um 1/3 af ísblöndunni þar í. Dreifið næst úr 1-2 msk. af karamellusósu yfir allt og endurtakið þrisvar sinnum þar til ísblandan er búin og um helmingurinn af karamellusósunni kominn í ísinn. Geymið restina af sósunni til að hita upp þegar bera á ísinn fram.
  7. Frystið ísinn í að minnsta kosti 3 klukkustundir eða nokkra daga (plastið ísinn ef geyma á hann lengur en sólahring í frystinum).
  8. Þegar bera á ísinn fram má setja væna karamellu popphrúgu á miðjuna og setja meira af karamellusósu yfir allt, bera svo restina fram með ísnum fyrir þá sem vilja meira.


Werthers karamellusósa aðferð


  1. Bræðið saman í potti við meðalhita og pískið þar til kekkjalaust. Leyfið karamellunni að ná stofuhita áður en þið notið hana í ísinn.


Fullkominn forréttur, snarlréttur eða sem meðlæti með öðrum mat svo nú verðið þið að prófa!
10 June 2026
Fullkominn forréttur, snarlréttur eða sem meðlæti með öðrum mat svo nú verðið þið að prófa!
Þessar snittur koma svo skemmtilega á óvart og eru fullkomnar á veisluborð með köldum drykk.
12 May 2026
Þessar snittur koma svo skemmtilega á óvart og eru fullkomnar á veisluborð með köldum drykk. Sætur rjómaostur er stjarnan á þessum snittum og passar einstaklega vel með ferskum ávöxtum, myntu og límónu.