Páskasúkkulaðimús

Uppskrift: Gerum daginn girnilegan

Fyrir 8 skálar


Hráefni

  • 400 g Milka Apline Milk súkkulaði
  • 100 g smjör
  • 70 g flórsykur
  • 4 egg
  • 1/2 léttþeyttur rjómi


Skraut

  • 2 pokar Cadbury Mini Eggs
  • 2 dl þeyttur rjómi


Aðferð


  1. Þeytið saman egg og flórsykur þar til það er létt og ljóst
  2. Bræðið Milka súkkulaði og smjör saman í vatnsbaði.
  3. Hellið súkkulaðiblöndunni varlega út í eggin.
  4. Blandið að lokum þeytta rjómanum við.
  5. Hellið blöndunni í falleg glös.
  6. Kælið í a.m.k. 4 klst - Helst yfir nótt.
  7. Takið út og skreytið með þeyttum rjóma og Cadbury Mini Eggs.


14 October 2026
Mjúkar og djúsí súkkulaðibollakökur með súkkulaðismjörkremi og stökku Nóa Poppi. Skemmtileg blanda af súkkulaði, karamellu og örlitlu salti sem setur sannkallaðan veislusvip á kökurnar.
14 October 2026
Volg súkkulaðibitakaka með stökkum brúnum og mjúkri miðju, borin fram með vanilluís. Brúnað smjör, súkkulaði og örlítið sjávarsalt gera þennan einfalda eftirrétt algjörlega ómótstæðilegan.