Heit smákaka og ís

Uppskrift: Nói

Volg súkkulaðibitakaka með stökkum brúnum og mjúkri miðju, borin fram með vanilluís. Brúnað smjör, súkkulaði og örlítið sjávarsalt gera þennan einfalda eftirrétt algjörlega ómótstæðilegan.

Innihaldsefni


Heit smákaka og ís

Uppskrift gefur um 12 kökur


  • 110 g smjör
  • 160 g púðursykur
  • 80 g sykur
  • 2 egg
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 1 msk. rjómi
  • 240 g hveiti
  • ½ tsk. lyftiduft
  • ½ tsk. matarsódi
  • ¼ tsk. salt
  • 150 g Síríus suðusúkkulaði
  • Gróft salt
  • Vanilluís


Aðferð

  1. Hitið ofninn í 180°C og setjið bökunarpappír í ofnskúffu.
  2. Bræðið smjörið við meðalháan hita þar til það fer að brúnast og þið finnið ilmandi karamellulykt. Hrærið vel í allan tímann og takið af hellunni þegar það fer að dökkna og hellið yfir í skál til að flýta fyrir því að það kólni aðeins.
  3. Setjið báðar tegundir af sykri í skál og hrærið eggjunum saman við, næst fer brúnaða smjörið saman við.
  4. Bætið þá vanilludropum og rjóma saman við og að lokum öllum þurrefnum (hveiti, lyftidufti, matarsóda og salti).
  5. Saxið suðusúkkulaðið gróft niður og vefjið saman við deigið með sleikju.
  6. Skiptið deiginu niður á tvær ofnskúffur og hafið gott bil á milli. Gott er að nota ísskeið eða annað til að skammta deiginu á skúffuna (hver kaka er um 70 g af deigi).
  7. Bakið í 10-12 mínútur, takið úr ofninum og stráið smá grófu salti yfir.
  8. Setjið tvær kúlur af ís í hverja skál og eina köku ofan á, njótið strax.
  9. Ef þið viljið ekki baka allar kökurnar í einu er sniðugt að plasta hverja deigkúlu og setja í kæli eða frysti og baka síðan jafnóðum þegar þið viljið volga smáköku á ís.


14 October 2026
Mjúkar og djúsí súkkulaðibollakökur með súkkulaðismjörkremi og stökku Nóa Poppi. Skemmtileg blanda af súkkulaði, karamellu og örlitlu salti sem setur sannkallaðan veislusvip á kökurnar.
14 October 2026
Dásamlegar piparmyntu-brownies þar sem djúpt súkkulaðibragð og ferskur piparmyntukeimur mætast í fullkomnu jafnvægi. Djúsí, einfaldar í bakstri og ómótstæðilegar með góðum kaffibolla.