20. ágúst – 12. september
HEILSUDAGAR
FJARÐARKAUPA
Yfir 1.000 hollustuvörur
á tilboði
Á meðan heilsudagar standa yfir bjóðum við yfir 1.000 hollustuvörur á frábærum tilboðum, svo það er tilvalið að fylla körfuna af gæðavörum á góðu verði.
Það verður líka nóg um að vera á samfélagsmiðlum okkar. Þar ætlum við að gefa glæsilega vinninga frá frábærum samstarfsaðilum okkar, auk þess sem við deilum með ykkur hollum, einföldum og gómsætum uppskriftum.
Í versluninni sjálfri verða jafnframt fjölbreyttar vörukynningar og smakk á meðan heilsudagar standa yfir. Við hvetjum ykkur því til að líta við, prófa eitthvað nýtt og skoða fjölbreytt úrvalið.
Við hlökkum til að sjá ykkur á Heilsudögum í Fjarðarkaup! 💚

Gómsætar og hollar upppskriftir!
Bláberjapönnukökur
Ég elska góða skyrdrykki og þennan prófaði ég fyrst fyrir löngu og hef gert ýmsar útfærslur af honum hingað til. Þessi er saðsamur og fullur af orku og ég mæli með að þið prófið!
Bananabrauð með döðlum
Það er svo ótrúlega sniðugt að henda í eitt stykki bananabrauð þegar maður á nokkra banana sem eru komnir vel á tíma. Þessi uppskrift er einföld og æðislega góð!
Spínatboost
Ég elska góða skyrdrykki og þennan prófaði ég fyrst fyrir löngu og hef gert ýmsar útfærslur af honum hingað til. Þessi er saðsamur og fullur af orku og ég mæli með að þið prófið!
Poke skál með kjúklingi
og salatosti
Hér er á ferðinni poke skál með gómsætum hráefnum en fólki er að sjálfsögðu frjálst að nota annað grænmeti og svo má líka prufa að skipta kjúklingi út fyrir lax, rækjur eða annað sem ykkur lystir.
Krönsí hafrakúlur
Hér kemur glæný uppskrift frá vinum okkar í Nóa sem er algjörlega frábær að prófa í byrjun árs þar sem Kellogg´s All bran er í aðalhlutverki.
MUNA Bláberjagrautur
Hér höfum við alveg einstaklega góðan MUNA hafragraut sem inniheldur meðal annars bláber, banana, möndlur og auðvitað hafra.
Kókosstangir með berjum og dökku súkkulaði
Hér er á ferðinni uppskrift að dásamlegum kókosstöngum sem tilvalið er að eiga í frystinum og grípa sér bita þegar sykurlöngunin hellist yfir.
Eðal hrákaka
Þessi kaka er súper einföld og tekur enga stund að útbúa, það eina sem þarf er matvinnsluvél eða góður blandari. Sniðugt er að eiga þessa köku inn í frysti til að gæða sér á þegar sætindaþörfin hellist yfir!
Púrrulauks ídýfa
Ljúffeng og mild púrrulauksdýfa sem passar fullkomlega með fersku grænmeti, kexi eða snakki. Frábær meðlæti á veisluborðið um áramótin eða þegar þig langar í eitthvað extra gott.











