Lambalæri með sinnepsrjómasósu og kartöflugratíni
Uppskrift: Gott í matinn
Hráefni og aðferð fyrir lambalæri, kartöflugratí og sinnepsrjómasósu
Það er alltaf svo sparilegt að bera fram lambalæri við hátíðleg tækifæri og ótal margar leiðir er hægt að fara hvað varðar útfærslur á eldun þeirra. Hér marinera ég lærið í franskri sinnepsdressingu sem innblásin er af Juliu Child, sem var alger sérfræðingur þegar kom að franskri matargerð. Frakkarnir eru þó ekki alveg jafn mikið sósufólk og við Íslendingar svo ég útbjó einfalda sinnepsrjómasósu til að hafa með kjötinu og alveg stórkostlegt kratöflugratín þar sem ég nota einnig Dala höfðingja til að gera það enn meira djúsí og gott. Fullkomin máltíð þegar á að gera vel við sig og sína!
Hráefni f. lambalærið
- 1 1/2 lambalæri án mjaðmabeins
- 120 g dijon sinnep (t.d. venjulegt og gróft til helminga)
- 60 ml ólífuolía
- 1 msk. sojasósa
- 1 msk. ferskur sítrónusafi
- 3 stk. hvítlauksrif
- 1 1/2 msk. ferskt rósmarín, saxað
- 1/2 tsk. svartur pipar
Aðferð
- Setjið sinnep, ólífuolíu, sojasósu, sítrónusafa, rósmarín og svartan pipar saman í krukku eða ílát sem hentar undir töfrasprota.
- Blandið allt vandlega saman með töfrasprota þannig að áferðin minni á majónessósu.
- Skolið og þerrið lærið. Skerið umframfitu af lærinu.
- Takið um 2 msk. af marineringunni fyrir sósuna og smyrjið restinni af henni á lærið og látið marinerast í að minnsta kosti 2-3 tíma eða jafnvel yfir nótt.
- Hitið ofninn í 175°C og stingið kjöthitamæli í þykkasta hlutann.
- Bakið lærið í ofninum þar til kjarnhiti nær 68°C sem er miðlungssteikt. Takið það þá út og látið það hvíla í um 15 mínútur áður en það er skorið svo það fái að jafna sig.
Hráefni f. kartöflugratín
- Olífuolía
- 8 stk. kartöflur, meðalstórar
- 1/2 stk. sæt kartafla
- 2 stk. gulrætur, stórar
- 1 stk. laukur, meðalstór
- 2 stk. hvítlauksrif
- 1 stk. Dala Höfðingi
- 1 tsk. sjávarsalt
- 1/2 tsk. svartur pipar
- 1 tsk. þurrkað timían
- 2 tsk þurrkuð steinselja
- 200 ml grænmetissoð
- 100 ml nýmjólk
- 250 ml rjómi frá Gott í matinn
- Rifinn pizza- eða gratínostur, eftir smekk..
Aðferð
- Hitið ofninn í 175°C blástur.
- Penslið steypujárnspönnu eða eldfast mót með ólífuolíu.
- Skerið kartöflur, sætu kartöfluna og gulrætur í þunnar sneiðar. Ef þið eigið mandólín er gott að nota það. Skerið Dala Höfðingja í sneiðar.
- Saxið laukinn í mátulega bita og saxið hvítlaukinn smátt.
- Setjið grænmetið í skál og dreifið örlitlu af ólífuolíu yfir, um það bil hálfri matskeið. Kryddið grænmetið og veltið í skálinni, gott er að nota tvær skeiðar til að hjálpa til við verkið.
- Raðið grænmetinu sitt á hvað á pönnuna og stingið ostsneið inn á milli með passlegu millibili. Passið að laukurinn fari líka með grænmetinu og stráið svo restinni af honum úr skálinni yfir grænmetið.
- Blandið saman grænmetissoði, mjólk og rjóma og hellið yfir grænmetið. Hyljið pönnuna eða fatið með álpappír.
- Bakið gratínið í 50 mínútur. Takið þá gratínið út og stráið osti yfir og bakið áfram í 10-15 mín.
- Gratínið er tilbúið þegar grænmetið er mjúkt í gegn og osturinn orðinn gylltur og fallegur.
Hráefni fyrir sinnepsrjómasósu
- 1 msk. smjör
- 1/2 stk laukur, smátt saxaður
- 300 ml lambasoð
- 2 msk. smávegis af marineringunni
- 1 tsk sojasósa
- 250 ml rjómi frá Gott í matinn
- Salt og pipar eftir smekk
- Sósujafnari
- Sósulitur, ef vill.
Aðferð
- Bræðið smjörið í potti og setjið laukinn út í. Steikið laukinn þar til hann er farinn að gyllast, gott er að nota frekar vægari hita svo laukurinn brenni ekki.
- Setjið lambasoð saman við ásamt marineringu og sojasósu.
- Soðið getur verið vatn sem er soðið upp í ílátinu af lambinu en má einnig vera vatn og teningur.
- Mér finnst gott að setja 1 tsk. í einu af marineringunni og smakka til. Sjóðið niður soðið um 1/3.
- Bætið við salti og pipar eftir smekk og setjið smávegis af sósujafnara og sósulit ef þið viljið fá sósuna þykkari og dekkri, þessu má þó alveg sleppa.
- Berið sósuna fram með lambalærinu og kartöflugratíninu.






