Sígilt hangikjötssalat á dönsku rúgbrauði

Uppskrift: Gerum daginn girnilegan

Það er fátt sem toppar góða brauðsneið með hangikjötssalati og þetta er að mínu mati það allra besta. Bragðmikið hangikjöt með silkimjúku majónesi, eggjum og strangheiðarlegum baunum og gulrótum úr dós. Mér finnst mjög gott að bera það fram á þéttu, góðu brauði líkt og dönsku rúgbrauði og þá er það næstum eins og íslensk útgáfa af smörrebröd. Það er auðvitað svo sígilt að skella því á milli tveggja nýrra samlokubrauðsneiða og það er alls ekki síðra. Hvernig sem þið viljið bera það fram get ég lofað því að salatið klikkar aldrei!

Hráefni


  • 300 g soðið hangikjöt, skorið í litla teninga
  • 4 stk harðsoðin egg
  • 1 dós af gulrótum og grænum baunum
  • 250 g Heinz, Seriously good mayonnaise
  • Salt og svartur pipar, eftir smekk


Leiðbeiningar


  1. Byrjið á því að sjóða eggin og kæla þau alveg.
  2. Setjið baunirnar og gulræturnar í sigti og látið vökvann renna vel af.
  3. Skerið hangikjötið í bita og setjið í skál ásamt eggjum og baunum. Blandið varlega saman.
  4. Setjið majónesið út í og blandið saman með sleikju. Smakkið til með salti og svörtum pipar.


14 October 2026
Mjúkar og djúsí súkkulaðibollakökur með súkkulaðismjörkremi og stökku Nóa Poppi. Skemmtileg blanda af súkkulaði, karamellu og örlitlu salti sem setur sannkallaðan veislusvip á kökurnar.
14 October 2026
Volg súkkulaðibitakaka með stökkum brúnum og mjúkri miðju, borin fram með vanilluís. Brúnað smjör, súkkulaði og örlítið sjávarsalt gera þennan einfalda eftirrétt algjörlega ómótstæðilegan.