Taco hringur

Uppskrift: Lindsey

Þessi taco hringur hefur slegið í gegn hjá bæði stórum og smáum! Hann er einfaldur í undirbúningi, lítur vel út á borðinu og hver biti er stútfullur af bragði. Fullkominn réttur til að deila með fjölskyldu og vinum – og líklegt að hann hverfi af borðinu á örfáum mínútum.


Hráefni


  • 1 pakki Meksikanske gryte frá Toro
  • 500 g nautahakk eða annað hakk
  • Litlar vefjur 17-20 stk
  • kóríander og sprettur – má sleppa
  • rifinn ostur


sósan:

  • sýrður rjómi
  • salsa sósa


Aðferð


  1. Þú byrjar á því að steikja hakkið og blandar svo grýtu pakkanum frá Toro út í hakkið ásamt vatni skv leiðbeiningum. Blandan þarf að malla og taka sig við vægan hita í um 20 mínútur. Á meðan er tilvalið að ná í vefjurnar. Þú getur annað hvort notað litlar vefjur eða skorið 4 vefjur út úr einni stórri (stærsta gerðin).

  2. Þegar taco blandan er tilbúin er hafist handa við að útbúa hringinn. Ef þú ert að gera hringinn á ofnplötu er sniðugt að setja litla sósuskál eins og á myndinni í miðjuna og raða svo taco fylltum vefjum í kring um skálina, þá færðu fullkominn hring. Að lokum er ostur settur yfir vefjurnar og þetta hitað í um 5-10 mínútur við 180 gráður svo osturinn bráðni.

  3. Á meðan er sósan útbúin en hún er gerð með því að blanda saman til helminga sýrðum rjóma og salsa sósu.

  4. Þegar rétturinn er borinn fram er gaman að setja eitthvað grænt með, kóríander, sprettur eða klettasalat en því má einnig sleppa.
5 September 2026
Þessar mjúku og gómsætu „donut holes“ eru ótrúlega einfaldar og þurfa aðeins örfá hráefni. Þær eru fylltar með GOOD GOOD hindberjasultu og bakaðar annaðhvort í air fryer eða ofni þar til þær verða fallega gullinbrúnar.
18 August 2026
Dagarnir eru stuttir, morgnarnir annasamir og þá er fátt betra en að eiga krukku af tilbúnum hafragraut sem bíður í ísskápnum. Með Turtle Chocolate & Banana hafragrautsblöndunni verður þetta einstaklega einfalt, þar sem grauturinn er þegar bragðbættur, næringarríkur og hollur. Hafragrautsblandan er lífræn og 100% náttú