Smash súkkulaðibitakökur
Uppskrift: Nói Síríus
Hráefni
Þessi uppskrift gefur 12–14 miðstórar kökur
- 170 g brætt smjör
- 200 g púðursykur
- 50 g sykur
- 1 egg
- 1 eggjarauða
- 1 tsk vanillupaste/dropar
- 220 g hveiti
- ½ tsk matarsódi
- ½ tsk salt
- 1 poki Smash (100 g)
- 1 plata Siríus suðusúkkulaði (100 g)
Aðferð
Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
- Saxið Smash og suðusúkkulaði í meðalstóra bita og setjið til hliðar.
- Þeytið smjör, sykur og púðursykur saman með písk þar til blandan er létt og samfelld. Bætið síðan egginu, eggjarauðunni og vanilludropunum út í og hrærið vel saman.
- Sigtið hveiti, matarsóda og salt saman og blandið varlega saman við smjörblönduna með sleif. Bætið Smash og suðusúkkulaðinu út í deigið og hrærið þar til allt hefur blandast jafnt.
- Mótið deigið í kúlur með lítilli eða meðalstórri ísskeið og raðið á bökunarpappír á ofnplötu. Bakið við 180°C (blástur) í 8–12 mínútur.
- Stráið örlitlu sjávarsalti yfir kökurnar strax eftir bakstur. Leyfið þeim að kólna örlítið áður en þær eru bornar fram. Njótið.

Dagarnir eru stuttir, morgnarnir annasamir og þá er fátt betra en að eiga krukku af tilbúnum hafragraut sem bíður í ísskápnum. Með Turtle Chocolate & Banana hafragrautsblöndunni verður þetta einstaklega einfalt, þar sem grauturinn er þegar bragðbættur, næringarríkur og hollur. Hafragrautsblandan er lífræn og 100% náttú



