Ostadýfa með chili

Uppskrift: Gott í matinn

„Einfaldar ídýfur slá alltaf í gegn. Þessi hér rífur aðeins í og er virkilega góð. Fullkomin fyrir sumarpartý, saumaklúbbinn eða kósýkvöldið.''


Hráefni


  • 1 stk. ostakubbur frá Gott í matinn
  • 100 g rjómaostur frá Gott í matinn
  • 2 msk. hunang (+ meira ofan á)
  • 2 stk. hvítlauksrif
  • 1 msk. jalapeño úr krukku
  • 2 tsk. chilli crisp í olíu
  • 1 lúka ristaðar furuhnetur


Aðferð


  1. Setjið ostakubb, rjómaost og hunang í blandara.
  2. Rífið hvítlauksrifin, saxið jalapeño og setjið saman við, blandið öllu vel þar til hægt er að smyrja úr blöndunni á disk.
  3. Toppið með chilli crisp, smá meira hunangi og ristuðum furuhnetum.
  4. Njótið með góðu kexi eða brauði.
14 October 2026
Mjúkar og djúsí súkkulaðibollakökur með súkkulaðismjörkremi og stökku Nóa Poppi. Skemmtileg blanda af súkkulaði, karamellu og örlitlu salti sem setur sannkallaðan veislusvip á kökurnar.
14 October 2026
Volg súkkulaðibitakaka með stökkum brúnum og mjúkri miðju, borin fram með vanilluís. Brúnað smjör, súkkulaði og örlítið sjávarsalt gera þennan einfalda eftirrétt algjörlega ómótstæðilegan.