Stökkar quesadillas með osti

Uppskrift: Gott í matinn

„Hér höfum við stökkar quesadillas með grísku ívafi. Einstaklega ferskar með bráðnum mozzarella osti, fersku spínati og ostakubb. Einfalt, fljótlegt og ómótstæðilega gott. Hentar sem létt máltíð eða forréttur. Einnig er hægt að bæta við kjúkling í fyllinguna fyrir þau sem vilja meira prótein.


Uppskriftin dugar fyrir 2-3''


Hráefni


  • 2 stk.stórar tortillur, 2-3 stk.
  • 2 handfylliferskt spínat
  • 100 gmozzarella perlur
  • 70 gostakubbur frá Gott í matinn
  • 10 stk.kirsuberjatómatar
  • 1⁄4 stk.rauðlaukur
  • 1⁄2 tsk.salt
  • 1⁄2 tsk.pipar
  • 1 msk.ferskur sítrónusafi
  • 1 msk.ólífuolía
  • kóríander, má sleppa



Aðferð

Skref 1


Setjið spínat í skál, ásamt mozzarellaperlum, smátt skornum ostakubbi, niðurskornum kirsuberjatómötum og smátt söxuðum rauðlauk. Ef þið viljið hafa kóríander þá setjið þið hann saman við.


Bætið sítrónusafa saman við ásamt salti og pipar og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.


Skref 2 


Skiptið blöndunni á milli þriggja tortilla og brjótið hverja saman til helminga.


Setjið 1 msk. af ólífuolíu á pönnu og steikið tortillurnar við meðal háan hita í rúmar tvær mínútur á hvorri hlið, eða þar til osturinn hefur náð að bráðna og tortillurnar er orðnar stökkar.

14 October 2026
Mjúkar og djúsí súkkulaðibollakökur með súkkulaðismjörkremi og stökku Nóa Poppi. Skemmtileg blanda af súkkulaði, karamellu og örlitlu salti sem setur sannkallaðan veislusvip á kökurnar.
14 October 2026
Volg súkkulaðibitakaka með stökkum brúnum og mjúkri miðju, borin fram með vanilluís. Brúnað smjör, súkkulaði og örlítið sjávarsalt gera þennan einfalda eftirrétt algjörlega ómótstæðilegan.