Spínat-boost

Uppskrift: MS

Ég elska góða skyrdrykki og þennan prófaði ég fyrst fyrir löngu og hef gert ýmsar útfærslur af honum hingað til. Þessi er saðsamur og fullur af orku og ég mæli með að þið prófið!


Hráefni


  • 300 g Ísey vanilluskyr
  • 3 lúkur spínat
  • 250 ml vanillublanda (eða léttmjólk)
  • 1 banani
  • 6-8 döðlur
  • 2 msk. hnetusmjör
  • Klakar
  • 1-2 tsk. spirulina + í hliðarnar


Leiðbeiningar


  1. Setjið allt saman í blandarann og blandið vel.
  2. Gaman er að skreyta glasið að innan með smá skyri og spirulinadufti áður en drykknum er hellt í glas. 
  3. Njótið á meðan drykkurinn er kaldur.




14 October 2026
Mjúkar og djúsí súkkulaðibollakökur með súkkulaðismjörkremi og stökku Nóa Poppi. Skemmtileg blanda af súkkulaði, karamellu og örlitlu salti sem setur sannkallaðan veislusvip á kökurnar.
14 October 2026
Volg súkkulaðibitakaka með stökkum brúnum og mjúkri miðju, borin fram með vanilluís. Brúnað smjör, súkkulaði og örlítið sjávarsalt gera þennan einfalda eftirrétt algjörlega ómótstæðilegan.