Bakaður ostakubbur með eggjum

Uppskrift: MS

Ótrúlega góður réttur sem hentar vel í helgarbrunchinn eða í kvöldmatinn þegar þú nennir ekki að elda. Svo ótrúlega einfalt og gott. 


Hráefni


  • Ostakubbur frá MS 250g
  • 10 egg
  • Salt og pipar
  • Basilika / fersk eða þurrkuð
  • Súrdeigsbrauð eða annað brauð
  • Eitthvað grænt skruat / Dill, steinselja, fersk basilikka ( má sleppa)

Leiðbeiningar


  • Ostakubburinn og eggin eru sett í eldfast mót ásamt kryddunum, þetta er svo hitað í ofni við 200 gráður í um 10 - 12 mínútur.
  • Þessu er öllu blandað saman þegar rétturinn kemur úr ofninum og smurt á ristað súrdeigsbrauð eða hrökkbrauð.
  • Það er gott að eggin séu ekki alveg full elduð, eldunartíminn gæti verið misjafn milli ofna 8-10 mínútur gætu dugað.
  • Ef eggin full eldast í ofninum er erfiðara að blanda þeim við ostinn en þá má einnig bæta örlítið af ab mjólk út í til að eggin blandist betur við ostakubbinn. 


14 October 2026
Mjúkar og djúsí súkkulaðibollakökur með súkkulaðismjörkremi og stökku Nóa Poppi. Skemmtileg blanda af súkkulaði, karamellu og örlitlu salti sem setur sannkallaðan veislusvip á kökurnar.
14 October 2026
Volg súkkulaðibitakaka með stökkum brúnum og mjúkri miðju, borin fram með vanilluís. Brúnað smjör, súkkulaði og örlítið sjávarsalt gera þennan einfalda eftirrétt algjörlega ómótstæðilegan.