Fullkomni Toblerone ísinn

Uppskrift: Gerum daginn girnilegan

Ég hugsa Toblerone ís sé eitthvað sem verður að vera á boðstólnum yfir hátíðirnar fyrir einhverja aðila. Þetta er algjör klassík og allir elska þennan ís, hvað þá þegar hann er borinn fram með heitri Tobleronesósu! Það er mun einfaldara en margur heldur að útbúa heimagerðan ís og þessi hér er einstaklega ljúffengur og góður.


Hráefni

Toblerone ís


  • 7 eggjarauður
  • 100 g sykur
  • 220 g Toblerone súkkulaði brætt
  • 700 ml rjómi þeyttur
  • 140 g Toblerone súkkulaði fínsaxað


Leiðbeiningar


  1. Þeytið eggjarauður og sykur saman í hrærivél þar til blandan er orðin létt og ljós.
  2. Bræðið 220 g af Toblerone súkkulaði yfir vatnsbaði, kælið það lítillega og hellið því síðan saman við eggjablönduna í mjórri bunu. Blandið vel saman.
  3. Blandið þeytta rjómanum að lokum varlega saman við með sleikju og loks saxaða Toblerone súkkulaðinu.
  4. Plastið að innan hringlaga kökumót með gati í miðjunni (til að auðveldara verði að losa ísinn) og hellið blöndunni þar ofan í og frystið yfir nótt.
  5. Hvolfið síðan forminu á þann disk sem bera á ísinn fram á og berið fram með heitri Toblerone íssósu.


Hráefni

Heit Toblerone íssósa


  • 220 g Toblerone súkkulaði
  • 100 ml rjómi


Leiðbeiningar


  1. Saxið Toblerone gróft niður og setjið í pott ásamt rjómanum.
  2. Hitið saman við meðalhita þar til súkkulaðið hefur bráðnað, hrærið reglulega í sósunni á meðan.
  3. Leyfið hitanum síðan aðeins að rjúka úr sósunni áður en hún er notuð á ísinn.
  4. Gott er að strá söcuðu Toblerone yfir ísinn ásamt heitu sósunni og fallegt að skreyta með blæjuberjum.






18 August 2026
Dagarnir eru stuttir, morgnarnir annasamir og þá er fátt betra en að eiga krukku af tilbúnum hafragraut sem bíður í ísskápnum. Með Turtle Chocolate & Banana hafragrautsblöndunni verður þetta einstaklega einfalt, þar sem grauturinn er þegar bragðbættur, næringarríkur og hollur. Hafragrautsblandan er lífræn og 100% náttú
18 August 2026
Mjúkir og góðir hafrabitar með súkkulaði sem gott er að gæða sér á með kaffinu um helgar eða fá sér einn bita þegar sætindaþörfin hellist yfir. Saðsamir og góðir!