Sætar sumarsnittur með rjómaosti

Uppskrift: Gott í matinn

„Þessar snittur koma svo skemmtilega á óvart og eru fullkomnar á veisluborð með köldum drykk. Sætur rjómaostur er stjarnan á þessum snittum og passar einstaklega vel með ferskum ávöxtum, myntu og límónu.“


Hráefni


  • 1 stk. stórt snittubrauð
  • smjör eftir þörfum
  • 1 askja jarðarber
  • 15 stk. græn vínber
  • 1 stk. mangó, vel þroskað
  • 200 g hreinn rjómaostur frá MS
  • 1 msk. flórsykur
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 2 msk. sykur
  • 1 stk. límóna
  • Nokkur fersk myntulauf



Aðferð


  1. Skerið snittubrauðið í þunnar sneiðar og steikið upp úr smjöri á pönnu þar til fallega gyllt báðu megin. Raðið á disk og látið kólna.
  2. Skerið ávextina mjög smátt og blandið saman í skál.
  3. Rífið börkinn af einni límónu og setjið í skál ásamt sykri og nokkrum smátt söxuðum myntublöðum. Blandið þessu vel saman.
  4. Blandið saman rjómaosti, flórsykri og vanilludropum.
  5. Smyrjið u.þ.b. 2 tsk. af rjómaostinum á hverja snittu.
  6. Dreifið ávaxtablöndunni yfir og toppið loks með límonu, myntusykrinum og skreytið með myntublaði.
  7. Berið fram strax.


5 September 2026
Þessar mjúku og gómsætu „donut holes“ eru ótrúlega einfaldar og þurfa aðeins örfá hráefni. Þær eru fylltar með GOOD GOOD hindberjasultu og bakaðar annaðhvort í air fryer eða ofni þar til þær verða fallega gullinbrúnar.
18 August 2026
Dagarnir eru stuttir, morgnarnir annasamir og þá er fátt betra en að eiga krukku af tilbúnum hafragraut sem bíður í ísskápnum. Með Turtle Chocolate & Banana hafragrautsblöndunni verður þetta einstaklega einfalt, þar sem grauturinn er þegar bragðbættur, næringarríkur og hollur. Hafragrautsblandan er lífræn og 100% náttú