Súkkulaði- og banana hafragrautur geymdur yfir nóttina

Uppskrift: AVITA

Dagarnir eru stuttir, morgnarnir annasamir og þá er fátt betra en að eiga krukku af tilbúnum hafragraut sem bíður í ísskápnum. Með Turtle Chocolate & Banana hafragrautsblöndunni verður þetta einstaklega einfalt, þar sem grauturinn er þegar bragðbættur, næringarríkur og hollur. Hafragrautsblandan er lífræn og 100% náttúruleg, glútenlaus og rík af trefjum og heilkornum.


Hráefni (1 skammtur)

Grunnurinn


  • 1 bolli (100 gr) Turtle Chocolate & Banana Porridge 
  • 200 ml ósæt heslihnetumjólk (eða önnur jurtamjólk að eigin vali) 
  • 1–2 msk hlynsíróp 
  • 2 msk hnetusmjör 
  • 1 msk brætt súkkulaði 
  • 1 msk chiafræ 
  • Klípa af salti 


Veldu þína uppáhalds útgáfu


Súkkulaði, banani og hnetusmjör

  • Bananasneiðar 
  • Smá aukahnetusmjör 
  • Vanilluskyr 
  • Turtle Oat cruncy granóla 


Súkkulaði og hindber

  • 2 msk hindberja-chiasulta (gerð úr 1 bolla hindberjum og 2 msk chiafræjum) 
  • Brætt dökkt súkkulaði 
  • Fersk hindber (valfrjálst) 


Aðferð

  1. Settu Turtle Chocolate & Banana hafragrautsblönduna, heslihnetumjólk og klípu af salti í pott. 
  2. Hitaðu við meðalhita þar til blandan verður mjúk og kremkennd. 
  3. Hrærið hlynsírópi, hnetusmjöri, bræddu súkkulaði og chiafræjum saman við þar til allt hefur blandast vel. 
  4. Helltu grautnum í krukku eða skál. 
  5. Bættu við því hráefni sem þér finnst best. 
  6. Settu lok á krukkuna og geymdu í ísskáp yfir nótt. 


Hugmyndir að tilbreytingum

  • Meiri stökkleiki: Bættu við granóla, söxuðum hnetum eða kakónibbum. 
  • Sætari útgáfa: Bættu við hunangi, meira hlynsírópi eða döðlusírópi. 
  • Ávextir: Epli, perur eða ferskar fíkjur. 
  • Extra dekur: Toppaðu með heslihnetukremi eða möndlusmjöri. 
5 September 2026
Þessar mjúku og gómsætu „donut holes“ eru ótrúlega einfaldar og þurfa aðeins örfá hráefni. Þær eru fylltar með GOOD GOOD hindberjasultu og bakaðar annaðhvort í air fryer eða ofni þar til þær verða fallega gullinbrúnar.
18 August 2026
Mjúkir og góðir hafrabitar með súkkulaði sem gott er að gæða sér á með kaffinu um helgar eða fá sér einn bita þegar sætindaþörfin hellist yfir. Saðsamir og góðir!