Mjúkir hafrabitar með súkkulaði

Uppskrift: Anna Eiríks

Mjúkir og góðir hafrabitar með súkkulaði sem gott er að gæða sér á með kaffinu um helgar eða fá sér einn bita þegar sætindaþörfin hellist yfir. Saðsamir og góðir!

Innihald


  • 1 bolli haframjöl frá Muna
  • 2 bananar
  • 1 tsk lyftiduft
  • 1 msk kókosolía
  • 1/4 bolli möndlumjólk
  • 1/2 tsk kanill (má sleppa)
  • Handfylli súkkulaðidropar


Aðferð


Stappið bananana vel saman og hrærið öllu nema súkkulaðinu saman við. Hellið blöndunni í ferkantað form sem búið er að smyrja og setjið súkkulaðidropa ofan á. Bakið við 180° í 10-15 mínútur og njótið í botn!

5 September 2026
Þessar mjúku og gómsætu „donut holes“ eru ótrúlega einfaldar og þurfa aðeins örfá hráefni. Þær eru fylltar með GOOD GOOD hindberjasultu og bakaðar annaðhvort í air fryer eða ofni þar til þær verða fallega gullinbrúnar.
18 August 2026
Dagarnir eru stuttir, morgnarnir annasamir og þá er fátt betra en að eiga krukku af tilbúnum hafragraut sem bíður í ísskápnum. Með Turtle Chocolate & Banana hafragrautsblöndunni verður þetta einstaklega einfalt, þar sem grauturinn er þegar bragðbættur, næringarríkur og hollur. Hafragrautsblandan er lífræn og 100% náttú