MUNA Bláberjagrautur

Uppskrift í samstarfi við MUNA

Hér höfum við alveg einstaklega góðan MUNA hafragraut sem inniheldur meðal annars bláber, banana, möndlur og auðvitað hafra. Hann er sætur og góður á bragðið án þess þó að innihalda neinn sykur.


Ég geri þennan graut reglulega fyrir son minn en hann er einn af þessum sem venjulega þolir ekki hafragraut, en hann alveg elskar þennan sem mér finnst segja mikið um ágæti þessa hrafragrauts.


Hægt er að bæta kollagenduft eða próteini út í grautinn fyrir þá sem það kjósa. Þetta er mjög hollur grautur sem nærir líkama og sál.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift


  • 1 dl MUNA haframjöl
  • 10 stk MUNA möndlur
  • 1 banani
  • 1 dl frosin bláber
  • 1 msk MUNA hampfræ
  • 1/2 msk MUNA möndlur 
  • 1/2 tsk MUNA kanill 
  • 3 dl möndlumjólk
  • 1 tsk MUNA möndlusmjör
  • Fersk bláber til að setja ofan á grautinn


Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu


  1. Setjið haframjöl í pott, saxið möndlurnar og bætið í pottinn.
  2. Skerið 1/3 af banananum í sneiðar og bætið út í pottinn ásamt frosnum bláberjum, hampfræjum, hörfræjum, kanil og möndlumjólk.
  3. Hrærið öllu saman og leyfið að malla við lágan hita í örfáar mínútur þar til grauturinn hefur samlagast.
  4. Setjið grautinn í skál og toppið með bananasneiðum, möndlusmjöri, ferskum bláberjum og jafvel aðeins meira af söxuðum möndlum.


Þessi taco hringur hefur slegið í gegn hjá bæði stórum og smáum! Hann er einfaldur í undirbúningi!
24 June 2026
Þessi taco hringur hefur slegið í gegn hjá bæði stórum og smáum! Hann er einfaldur í undirbúningi, lítur vel út á borðinu og hver biti er stútfullur af bragði. Fullkominn réttur til að deila með fjölskyldu og vinum – og líklegt að hann hverfi af borðinu á örfáum mínútum.
Einfaldar ídýfur slá alltaf í gegn. Þessi hér rífur aðeins í og er virkilega góð.
22 June 2026
Einfaldar ídýfur slá alltaf í gegn. Þessi hér rífur aðeins í og er virkilega góð. Fullkomin fyrir sumarpartý, saumaklúbbinn eða kósýkvöldið.