Fylltir vatnsdeigshringir (chouxnuts)

Uppskrift: Döðlur & Smjör

Hráefni

  • 250 ml vatn
  • 125 g smjör
  • 125 g hveiti
  • 4 egg
  • 700 ml jurtaolía


  • 1 pk Eitt sett Royal búðingur
  • 400 ml mjólk


Aðferð

Setjið vatn og smjör í pott og leyfið smjörinu að bráðna. Takið pottinn af hitanum og hrærið hveitinu saman við þar til deigið er orðið einn massi, kælið deigið örlítið. Setjið deigið í hrærivélarskál og bætið eggjunum út í einu í einu og hrærið vel á milli. Setjið deigið þá í sprautupoka. Klippið þá bökunarpappír tvær arkir hvor í sex parta og sprautið hring af deiginu á hvern pappír.


Hellið olíu í pott og hitið upp í 175°c. Setjið þá fyrsta hringinn út í og leyfið pappírnum að fylgja með, hann losnar frá hægt og rólega. Gott er að miða við 3 mín á hvorri hlið en fylgist með, mögulega þarf aðeins lengri eða styttri tíma. Takið upp úr og leyfið að kólna alveg.


Útbúið búðinginn og kælið hann lítillega. Þegar hann hefur stífnað örlítið setjið hann í sprautupoka með stút á (ef þið eigið fyllingastút endilega notið hann). Sprautið þá búðingnum inn í vatnsdeigshringina á tveimur stöðum á botninum. Ef þið viljið er einnig hægt að bræða súkkulaði og dýfa hringjunum ofan í.


5 September 2026
Þessar mjúku og gómsætu „donut holes“ eru ótrúlega einfaldar og þurfa aðeins örfá hráefni. Þær eru fylltar með GOOD GOOD hindberjasultu og bakaðar annaðhvort í air fryer eða ofni þar til þær verða fallega gullinbrúnar.
18 August 2026
Dagarnir eru stuttir, morgnarnir annasamir og þá er fátt betra en að eiga krukku af tilbúnum hafragraut sem bíður í ísskápnum. Með Turtle Chocolate & Banana hafragrautsblöndunni verður þetta einstaklega einfalt, þar sem grauturinn er þegar bragðbættur, næringarríkur og hollur. Hafragrautsblandan er lífræn og 100% náttú