„Royalistinn“
Uppskrift: Gotteri.is
Uppskrift dugar í um 4 glös.
Súkkulaði- og lakkrís búðingur
- 1 pakki Eitt Sett Royal búðingur
- 250 ml rjómi
- 250 ml nýmjólk
Aðferð
- Pískið eða þeytið allt saman í um eina mínútu eða þar til blandan fer aðeins að þykkna.
- Skiptið niður í falleg glös/skálar og kælið í um 30 mínútur, gott að gera lakkríssósuna á meðan.
Lakkríssósa
- 150 g lakkrískúlur
- 100 ml rjómi
Aðferð
- Setjið kúlur og rjóma saman í pott við meðalháan hita og bræðið saman.
- Þegar slétt lakkríssósa hefur myndast má hella henni úr pottinum yfir í skál/könnu og leyfa að ná stofuhita áður en hún er sett yfir búðinginn.
- Setjið síðan 1-2 matskeiðar af sósu yfir búðinginn (eftir smekk), kælið aftur í nokkrar mínútur (til þess að þeytti rjóminn leki ekki til ef sósan er enn volg).
Toppur
- 250 ml þeyttur rjómi
- Lakkrískurl frá Nóa Siríus
- Smá lakkríssósa
Aðferð
- Setjið rjómann í sprautupoka með stórum hringlaga stút eða klippið gat á zip-lock poka. Sprautið snúning ofan á hvern búðing.
- Stráið smá sósu og lakkrískurli yfir.



Dagarnir eru stuttir, morgnarnir annasamir og þá er fátt betra en að eiga krukku af tilbúnum hafragraut sem bíður í ísskápnum. Með Turtle Chocolate & Banana hafragrautsblöndunni verður þetta einstaklega einfalt, þar sem grauturinn er þegar bragðbættur, næringarríkur og hollur. Hafragrautsblandan er lífræn og 100% náttú



