Tómatasta með basilíku og mozzarellakúlum

Uppskrift í samstarfi við Gott í matinn

Einstaklega fljótlegt og gott pasta fyrir sælkera með heimatilbúinni tómatbasil sósu og ferskum mozzarella. Pastað má bera fram bæði heitt og kalt og því hægt að gera það fram í tímann. Furuhneturnar gefa stökkt og gott bragð á móti mjúkum mozzarellaostinum. Frábær réttur sem hægt er t.d. að bera fram í stað ostabakka til tilbreytingarl, með glasi af góðu víni, sem forrétt eða sem léttan kvöldmat. Fyrir þá sem vilja aðeins matarmeira pasta er tilvalið að bjóða upp á grillaðar kjúklingalundir með pastanu. 


Hráefni

4 skammtar

  • 50 ml ólífuolia
  • 5 stk. hvítlauksgeirar
  • 600 g heilir tómatar í dós
  • 2 tsk. sjávarsalt
  • 1⁄2 tsk. svartur pipar
  • 12 stk. lauf af ferskri basilíku
  • 500 g pasta að eigin vali
  • 10 stk. litlir tómatar
  • 30 g Goðdala Feykir eða parmesan
  • 50 g furuhnetur
  • 180 g mozzarellakúlur eða mozzarella perlur (1 dós)


Aðferð

  1. Hitið ólífuolíu í potti yfir vægum hita, saxið smátt niður hvítlauk og setið saman við.
  2. Leyfið olíunni að sjóða létt þar til hvítlaukurinn er orðið ljós gylltur að lit.
  3. Hellið tómötunum í dós saman við ásamt safanum, grófsaxið þá með kartöflustappara eða sleif, passið þó að stappa þá ekki of mikið þar sem sósan á að vera gróf.
  4. Grófsaxið ferska basilíku og blandið saman ásamt salti og pipar og látið sósuna sjóða í það minnsta 10 mínútur yfir meðalháum hita. Sósan á að þykkna.
  5. Á meðan sósan þykknar sjóðið þið pasta í söltuðu vatni eftir leiðbeiningum á pakkningu.
  6. Þegar pastað er soðið, hellið vatninu af og blandið því strax saman við sósuna.
  7. Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  8. Setjið pastað á fallegan disk eða í grunna skál.
  9. Skerið niður ferska tómata og raðið þeim yfir pastað ásamt mozzarellakúlum og rifnum Goðdala Feyki eða parmesan osti.
  10. Ristið furuhnetur ásamt 1 msk. af ólífuolíu, gætið þess að hræra stanslaust í hnetunum því þær brenna auðveldlega. Þetta tekur um 2-3 mínútur.
  11. Hellið hnetunum yfir pastað ásamt nokkrum ferskum laufum af basilíku.
  12. Gott er að bera pastað fram með auka skammti af Feyki eða parmesan, góðri ólífuolíu og meira sjávarsalti fyrir þá sem vilja.
  13. Hægt er að bera fram pastað heitt eða kalt.
8 September 2025
„Þessi uppskrift er alveg hreint dásamleg. Hún er bæði auðveld og mun ódýrari en að kaupa tilbúinn hummus út í búð,“ segir heilsukokkurinn Kristjana Steingrímsdóttir eða Jana eins og hún er kölluð um þennan einfalda og gómsæta MUNA hummus sem hún skellti í á dögunum. Jana lætur flesta matargerð líta einfaldlega út en h
7 September 2025
Hvað er betra en gott kósýkvöld heima eftir góða vinnuviku? Þá er dásamlegt að setjast niður með hollari valkost af heimalöguðu poppi, sem inniheldur trefjar, færri kaloríur og andoxunarefni og njóta með góðri samvisku.