Doré draumur

Uppskrift í samstarfi við Nóa Siríus

Svampbotn 

Fyrir 10-12 manns 


  • 3 egg 
  • 100 g sykur 
  • 45 g hveiti 
  • 45 g kartöflumjöl 
  • 1 1⁄2 tsk. lyftiduft 


1. Þeytið saman egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós. 

2. Sigtið saman hveiti, kartöflumjöl og lyftiduft og bætið varlega saman við.  3. Setjið bökunarpappír í botninn á 22-24 cm smelluformi og smyrjið formið vel. Hellið blöndunni í formið og bakið við 175°C í 15-20 mínútur eða þar til prjónn kemur hreinn  út. 



Marengs 


  • 4 eggjahvítur 
  • 190 g sykur 

 

4. Þeytið saman eggjahvítur og sykur þar til topparnir halda sér. 

5. Teiknið 18-20 cm hring á bökunarpappír og dreifið jafnt úr marengsblöndunni innan hringsins. 

6. Bakið við 100°C í tvær klukkustundir og leyfið að kólna í ofninum. 



Súkkulaðifylling

 

  • 4 eggjarauður 
  • 60 g flórsykur 
  • 60 g Síríus Barón 56% suðusúkkulaði 
  • 60 g Síríus Doré karamellusúkkulaðidropar 
  • 350 ml rjómi 


7. Þeytið eggjarauður og flórsykur þar til blandan þykkist og lýsist. 

8. Bræðið Barón og Doré súkkulaðið, leyfið hitanum að rjúka úr í nokkrar mínútur og blandið því næst varlega saman við eggjablönduna. 

9. Þeytið rjómann og blandið varlega saman við súkkulaðiblönduna með sleikju. 




Rjómi, skraut og samsetning 


  • 500 ml rjómi (þeyttur) 
  • 50 g Síríus Doré karamellusúkkulaðidropar 
  • Síríus karamellukurl 


10. Þeytið rjómann og bræðið súkkulaðið. 

11. Setjið svampbotninn á kökudisk. Setjið helming þeytta rjómans á svampbotninn og svo helming súkkulaðifyllingarinnar þar ofan á. 

12. Marengsinn kemur því næst og svo restin af rjómanum og súkkulaðifyllingunni í sömu  röð og áður. 

13. Að lokum má dreifa brædda súkkulaðinu ofan á súkkulaðikremið ásamt  karamellukurli. Kælið kökuna vel, helst yfir nótt.


5 September 2026
Þessar mjúku og gómsætu „donut holes“ eru ótrúlega einfaldar og þurfa aðeins örfá hráefni. Þær eru fylltar með GOOD GOOD hindberjasultu og bakaðar annaðhvort í air fryer eða ofni þar til þær verða fallega gullinbrúnar.
18 August 2026
Dagarnir eru stuttir, morgnarnir annasamir og þá er fátt betra en að eiga krukku af tilbúnum hafragraut sem bíður í ísskápnum. Með Turtle Chocolate & Banana hafragrautsblöndunni verður þetta einstaklega einfalt, þar sem grauturinn er þegar bragðbættur, næringarríkur og hollur. Hafragrautsblandan er lífræn og 100% náttú