Nýr kafli í 53 ára sögu Fjarðarkaupa

Undanfarið hafa staðið yfir viðræður við áhugasama aðila um sölu Fjarðarkaupa. Þær viðræður hafa nú verið til lykta leiddar með undirritun kaupsamnings. Eins og nærri má geta þá fylgja því blendnar tilfinningar fyrir okkur systkinin að senda frá okkur þessar línur. Fjarðarkaup hafa verið hluti af fjölskyldu okkar frá stofnun 7. júlí árið 1973 eða í yfir 53 ár.


Þá stofnuðu tvenn hjón lágvöruverðsverslun sem segja má að hafi verið nýjung í verslun á Íslandi á þeim tíma. Vörurnar voru sumar á brettum á búðargólfinu og öll umgjörð látlaus og einföld. Verslunin opnaði fyrst á Trönuhrauni 8 í Hafnarfirði og var starfrækt þar allt til 23. september 1982 þegar hún var flutt yfir á Hólshraun 1 þar sem hún er enn.


Hjónin sem stóðu að opnun Fjarðarkaupa voru annars vegar foreldrar okkar, þau Ingibjörg Gísladóttir og Sigurbergur Sveinsson og hinsvegar Valgerður Jónsdóttir og Bjarni Blomsterberg. Þau fjögur störfuðu saman að rekstrinum í 20 ár eða þar til Ingibjörg og Sigurbergur keyptu hlut Valgerðar og Bjarna árið 1993 og ráku verslunina áfram. Ingibjörg lést árið 2009 og Sigurbergur árið 2023.


Þrjú af okkur fjórum systkinunum höfum komið að rekstrinum með einhverjum hætti um langt skeið. Sveinn hefur starfað sem verslunarstjóri undanfarna áratugi og Gísli hefur lengi starfað sem verðlagsstjóri en auðvitað hafa störf þeirra á margan hátt fléttast saman við önnur hlutverk í rekstrinum eins og gengur. Þá hefur Hjördís rekið hannyrðadeild verslunarinnar sem starfar undir merkinu Rokka. Rósa valdi sér hins vegar vettvang innan menntakerfisins og starfaði sem kennari. En öll höfum við unnið í versluninni um lengri eða skemmri tíma. Og það þekkja þeir sem hafa alist upp með fjölskyldufyrirtæki í rekstri að það verður fyrirferðarmikið í lífsmynstri þeirra sem í hlut eiga. Stundum er talað um að það sé lífsstíll að vera hluti af slíkri starfsemi og það má með sanni segja að eigi við um okkur öll, foreldra okkar og nú börnin okkar og jafnvel barnabörn.


Fjarðarkaup hafa vaxið og dafnað frá stofnun og má segja að ráðdeild og skynsemi hafi verið aðalsmerki stofnendanna. Orðatiltæki eins og að sníða sér stakk eftir vexti, að halda sínu striki, fara fetið og færast ekki of mikið í fang hafa fylgt öllum fjárfestingum og framkvæmdum. Sama var að segja um reksturinn, til dæmis var ekki stokkið á nýjungar fyrr en þær höfðu fest sig í sessi annars staðar og ekki ráðist í stækkanir eða breytingar á búðinni nema eftir vandlega ígrundun og við knýjandi þörf. Aðalatriðið var og er alltaf að standa undir væntingum viðskiptavinanna bæði með vöruúrvali og grundvallarreglunni um að hillurnar mega aldrei tæmast. Flest af þessu er enn í fullu gildi.


Ein mesta gæfa okkar, sem höfum staðið að rekstri Fjarðarkaupa frá upphafi, hefur verið fólgin í tryggu og stöðugu starfsliði. Það sama gildir um unga fólkið sem komið hefur tímabundið til starfa, til dæmis með skóla á sumrin og um helgar. Þannig hefur orðið til skemmtileg blanda af eldra og yngra fólki, hópur sem vinnur samhentur að því að tryggja viðskiptavinum þá upplifun sem Fjarðarkaup eru þekkt fyrir; frábæra þjónustu, framúrskarandi vöruúrval og gott verð. Við höfum jafnframt í sameiningu skapað og varðveitt traust og góð tengsl við birgja og aðra samstarfsaðila sem hefur sömuleiðis endurspeglast í gagnkvæmri tryggð.


Við göngum afar stolt og ánægð frá þessu verkefni sem hefur fylgt okkur frá barnsaldri en því fylgir eðlilega um leið bæði söknuður og tregi. En við vitum að Fjarðarkaup verða í góðum höndum hjá nýjum eigendum en þá ekki síður hjá starfsfólkinu okkar sem kýs að starfa áfram í versluninni þótt breytingar verði á eignarhaldinu.


Megi blessun og gæfa fylgja Fjarðarkaupum, starfsliði og eigendum um ókomin ár.


Hjördís, Rósa, Sveinn og Gísli.