Gróft spelt- og hafrabrauð með graskersfræjum

Uppskrift í samstarfi við Gott í matinn

Ég var eiginlega búin að gleyma því hversu dásamlega gott það er að baka sitt eigið brauð. Þó mér finnist nú voða gaman að baka svona almennt þá finnst mér brauðbakstur toppa annan bakstur. Það er eitthvað svo róandi við að baka brauð, sérstaklega svona brauð sem er eiginlega engin hætta á að klúðra.


Innihald


  • 5 dlgróft spelt
  • 2 dlgrófir hafrar
  • 1⁄2 dlsesamfræ
  • 1 dlgraskersfræ
  • 1 tsk.sjávarsalt
  • 4 tsk.vínsteinslyftiduft
  • 3 dlab mjólk frá MS
  • 1 msk.ólífuolía
  • 2 1⁄2 dlheitt vatn (2-3 dl)

Aðferð


  1. Hitið ofn i 160 gráður með blæstri eða 180 gráður án blásturs.
  2. Blandið saman í skál öllum þurrefnum.
  3. Hrærið saman við olíunni og ab mjólkinni. Bætið vatninu smám saman út í og hrærið aðeins þar til deigið er að mestu komið saman, alls ekki hræra of mikið. Deigið á að vera eins og þykkur grautur og dálítið klístrað.
  4. Setjið deigið í smurt brauðform (jólakökuform) og stráið vel af graskersfræjum yfir.
  5. Bakið í 45 mínútur. Ef þið gerið litlar bollur úr deiginu, setjið þá um 2 msk. af því í einu á bökunarplötu og bakið í um 15-20 mínútur.
  6. Ég mæli með því að vefja brauðinu inn í þurrt viskastykki þegar það hefur verið losað úr forminu og því leyft að kólna þannig í a.m.k 30-60 mínútur eftir bakstur. Þá mýkist skorpan aðeins og mun auðveldara verður að skera það í fallegar sneiðar.


Þessi taco hringur hefur slegið í gegn hjá bæði stórum og smáum! Hann er einfaldur í undirbúningi!
24 June 2026
Þessi taco hringur hefur slegið í gegn hjá bæði stórum og smáum! Hann er einfaldur í undirbúningi, lítur vel út á borðinu og hver biti er stútfullur af bragði. Fullkominn réttur til að deila með fjölskyldu og vinum – og líklegt að hann hverfi af borðinu á örfáum mínútum.
Einfaldar ídýfur slá alltaf í gegn. Þessi hér rífur aðeins í og er virkilega góð.
22 June 2026
Einfaldar ídýfur slá alltaf í gegn. Þessi hér rífur aðeins í og er virkilega góð. Fullkomin fyrir sumarpartý, saumaklúbbinn eða kósýkvöldið.