Súkkulaðikaka með Nóa kroppi
Uppskrift: Nói Síríus
Hráefni
Botnar
- 260 g hveiti
- 50 g bökunarkakó
- 1 tsk. lyftiduft
- 1 tsk. matarsódi
- 200 g sykur
- 100 g púðursykur
- 1 tsk. salt
- 110 ml ljós matarolía
- 3 egg
- 180 g sýrður rjómi
- 2 tsk. vanilludropar
- 240 ml uppáhellt kaffi (heitt)
Krem og skreyting
- 380 g smjör við stofuhita
- 360 g flórsykur
- 70 g bökunarkakó
- 2 tsk. vanilludropar
- 3 msk. uppáhellt kaffi
- ½ tsk. salt
- 130 g Síríus suðusúkkulaði (brætt)
- 2 x pokar af Nóa Kroppi (2 x 240 g)
Aðferð
Botnar
- Hitið ofninn í 170°C og spreyið 2 x 20 cm form að innan með matarolíuspreyi, einnig gott að klippa smjörpappír í botninn.
- Sigtið hveiti, kakó, lyftiduft og matarsóda í hrærivélarskál og hrærið síðan sykri, púðursykri og salti saman við.
- Pískið matarolíu, egg, sýrðan rjóma og vanilludropa saman í skál og blandið saman við þurrefnin.
- Hellið að lokum heitu kaffinu saman við og skiptið deiginu jafnt í formin (deigið er þunnt).
- Bakið í um 30 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á endanum en ekki blautu deigi.
- Kælið og skerið örlítið af toppnum til að jafna botnana áður en þið setjið kremið á.
Krem og skreyting
- Þeytið smjörið þar til það verður létt og ljóst (um 5 mínútur).
- Bætið flórsykri, bökunarkakó, vanilludropum, kaffi og salti saman við og þeytið áfram.
- Bætið að lokum bræddu súkkulaðinu saman við og blandið vel, skafið niður á milli.
- Smyrjið þykku lagi af kremi á milli botnanna (um 2 cm) og næst má þekja hana með góðu lagi af kremi á hliðum og topp.
- Að lokum má hylja hana eins og hægt er með Nóakroppi.
- Best er að taka fulla lúku, leggja höndina upp við kökuna og draga kúlurnar upp hliðina, klárið svo skreytinguna með því að þekja toppinn með Nóakroppi.




