Smash súkkulaðibitakökur

Uppskrift: Nói Síríus

Hráefni

Þessi uppskrift gefur 12–14 miðstórar kökur


  • 170 g brætt smjör
  • 200 g púðursykur
  • 50 g sykur
  • 1 egg
  • 1 eggjarauða
  • 1 tsk vanillupaste/dropar
  • 220 g hveiti
  • ½ tsk matarsódi
  • ½ tsk salt
  • 1 poki Smash (100 g)
  • 1 plata Siríus suðusúkkulaði (100 g)


Aðferð

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu


  1. Saxið Smash og suðusúkkulaði í meðalstóra bita og setjið til hliðar.
  2. Þeytið smjör, sykur og púðursykur saman með písk þar til blandan er létt og samfelld. Bætið síðan egginu, eggjarauðunni og vanilludropunum út í og hrærið vel saman.
  3. Sigtið hveiti, matarsóda og salt saman og blandið varlega saman við smjörblönduna með sleif. Bætið Smash og suðusúkkulaðinu út í deigið og hrærið þar til allt hefur blandast jafnt.
  4. Mótið deigið í kúlur með lítilli eða meðalstórri ísskeið og raðið á bökunarpappír á ofnplötu. Bakið við 180°C (blástur) í 8–12 mínútur.
  5. Stráið örlitlu sjávarsalti yfir kökurnar strax eftir bakstur. Leyfið þeim að kólna örlítið áður en þær eru bornar fram. Njótið.
14 July 2026
Ómótstæðileg rjómaískaka með stökkum kremkexbotni, súkkulaðikringlum frá Nóa Síríus og saltri karamellu. Einföld og glæsileg veislukaka sem slær alltaf í gegn.
14 July 2026
Dúnmjúk og djúsí súkkulaðikaka með ríkulegu súkkulaðikremi og stökkum Nóa Kropp-kúlum. Fullkomin kaka fyrir afmæli, veislur og önnur hátíðleg tilefni.