Spagettí með burrata

Uppskrift: Gott í matinn

Hérna erum við búin að færa sígildan rétt í sannkallaðan sparibúning og ljúffengar burrata kúlurnar gera góðan rétt enn betri. Nú er tími til að njóta!


Hráefni

  • 400 gspagettí
  • 1⁄2 stk.laukur
  • 4 stk.hvítlauksrif
  • 350 gkirsuberjatómatar
  • 1 dóshakkaðir tómatar (um 400 g)
  • 150 mlrjómi frá Gott í matinn
  • 3 msk.söxuð basilíka (og meira til skrauts)
  • ólífuolía
  • salt og svartur pipar
  • balsamik gljái
  • 3 stk.burrata kúlur


Aðferð

  1. Sjóðið spagettí í söltu vatni þar til það er al dente.
  2. Saxið laukinn smátt og steikið í nokkrar mínútur upp úr ólífuolíu eða þar til hann mýkist.
  3. Rífið þá hvítlaukinn saman við og steikið áfram.
  4. Hellið kirsuberjatómötunum saman við.
  5. Eldið við meðalhita þar til tómatarnir byrja að springa en þá má bæta hökkuðum tómötum úr dós og rjóma á pönnuna og leyfa að malla í nokkrar mínútur, krydda til eftir smekk og bæta saxaðri basiliku saman við.
  6. Blandið spagettínu saman við sósuna og hrærið vel.
  7. Berið fram með burrata osti, balsamik gljáa og ferskri basiliku.


18 August 2026
Dagarnir eru stuttir, morgnarnir annasamir og þá er fátt betra en að eiga krukku af tilbúnum hafragraut sem bíður í ísskápnum. Með Turtle Chocolate & Banana hafragrautsblöndunni verður þetta einstaklega einfalt, þar sem grauturinn er þegar bragðbættur, næringarríkur og hollur. Hafragrautsblandan er lífræn og 100% náttú
18 August 2026
Mjúkir og góðir hafrabitar með súkkulaði sem gott er að gæða sér á með kaffinu um helgar eða fá sér einn bita þegar sætindaþörfin hellist yfir. Saðsamir og góðir!