Lakkrísbollur Vatnsdeigsbollur 

Uppskrift: Gotteri.is

Vatnsdeigsbollur 

10-12 stykki


  • 150 g hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft
  • ¼ tsk. salt
  • 140 g smjör
  • 270 ml vatn
  • 3 egg (um 120-130 g)


Aðferð

  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Hrærið saman hveiti, lyftidufti og salti saman í skál og geymið.
  3. Hitið saman vatn og smjör í potti þar til smjörið er bráðið og blandan vel heit. Leyfið að bubbla aðeins og takið síðan af hellunni.
  4. Hellið hveitiblöndunni saman við smjörblönduna og hrærið/vefjið saman við með sleikju þar til allir kekkir eru horfnir og blandan losnar auðveldlega frá köntum pottsins.
  5. Flytjið blönduna yfir í hrærivélarskálina og hrærið á lægsta hraða með K-inu og leyfið hitanum þannig að rjúka aðeins úr blöndunni á meðan þið pískið eggin.
  6. Setjið eggin næst saman við í litlum skömmtum og skafið niður á milli. Athugið að nota aðeins 120-130 g af eggjunum. Egg eru misstór og því gott að vigta þetta til þess að deigið verði ekki of þunnt.
  7. Setjið bökunarpappír á ofnplötu og hver bolla má vera um 2 matskeiðar af deigi (ein vel kúpt matskeið).
  8. Bakið í 27-30 mínútur, bollurnar eiga að vera orðnar vel gylltar og botninn líka, ekki opna þó ofninn fyrr en í fyrsta lagi eftir 25 mínútur til að kíkja undir eina. Helstu mistök sem fólk gerir er að baka bollurnar ekki nógu lengi og þá falla þær.


Lakkrísfylling

  • 1 pakki Eitt sett Royal búðingur
  • 250 ml nýmjólk
  • 500 ml þeyttur rjómi


Aðferð

  1. Pískið mjólk og búðingsduft saman í um eina mínútu, setjið í kæli og leyfið að þykkna í um 10-15 mínútur. Gott er að hræra varlega í blöndunni með sleikju nokkrum sinnum á meðan.
  2. Hellið búðingsblöndunni þá saman við þeytta rjómann og vefjið varlega saman með sleikju þar til vel blandað, létt og ljóst.
  3. Setjið í sprautupoka og setjið á bollurnar.


Glassúr og skraut

  • 100 g brætt smjör
  • 200 g flórsykur
  • 3 msk. bökunarkakó
  • 3 tsk. vanilludropar
  • 2 msk. kaffi (uppáhellt)
  • Vatn ef ykkur finnst þurfa að þynna kremið
  • Lakkrískurl


Aðferð

  1. Allt sett saman í skál (nema lakkrískurlið) og hrært saman með písk/skeið þar til vel blandað.
  2. Best er að fylla bollurnar fyrst og setja svo væna teskeið af glassúr ofan á „lokið“ og dreifa aðeins út og strá lakkrískurli yfir áður en glassúrinn tekur sig.


13 February 2026
Stillið ofn á 180°c. Setjið vatn og smjör í pott og leyfið smjörinu að bráðna. Takið pottinn af hitanum og hrærið hveitinu saman við þar til deigið er orðið einn massi, kælið deigið örlítið. Setjið deigið í hrærivélarskál og bætið eggjunum út í einu í einu og hrærið vel á milli. Setjið deigið þá í sprautupoka og spraut
13 February 2026
12-14 stykki