Bolla ársins

Uppskrift: Gotteri.is

10-14 bollur


Bolla Ársins

  • 250 ml vatn
  • 125 g smjör
  • 125 g hveiti
  • 4 egg


Aðferð

Stillið ofn á 180°c. Setjið vatn og smjör í pott og leyfið smjörinu að bráðna. Takið pottinn af hitanum og hrærið hveitinu saman við þar til deigið er orðið einn massi, kælið deigið örlítið. Setjið deigið í hrærivélarskál og bætið eggjunum út í einu í einu og hrærið vel á milli. Setjið deigið þá í sprautupoka og sprautið bollur á smjörpappírsklædda plötu, eða notið tvær teskeiðar til setja deigið á plötuna. Bakið í 18-20 mínútur. Ef þið viljið hafa bollurnar stærri þá er tíminn aukinn í samræmi við það.


Fylling

  • ½ pk Eitt sett Royal búðingur
  • 250 ml mjólk
  • 250 ml rjómi
  • Piparfylltar lakkrís reimar


Aðferð

Blandið saman Eitt sett búðing með mjólk og hrærið vel saman, kælið. Þeytið rjómann og gott er að setja hann í sprautupoka en ekkert mál að setja á bolluna með skeið líka. Skerið niður lakkrís reimarnar í u.þ.b. cm bita.


Takið bollurnar og skerið þær í tvennt. Ég mæli með Nusica súkkulaðismyrju til að gera hatt á bollurnar, hita það örlítið í örbylgju og dýfa. Það stífnar í fullkominn bolluhatt að mínu mati.


Takið þá búðinginn og setjið 1-2 msk af honum í botninn á bollunum, magn eftir stærð. Sprautið þá rjómanum yfir og lokið bollunum. Sáldrið þá lakkrísnum yfir bollurnar og berið fram.


Ef bollurnar eru ekki bornar fram strax, geymið þær í kæli.


13 February 2026
12-14 stykki
13 February 2026
Setjið vatn og smjör í pott og leyfið smjörinu að bráðna. Takið pottinn af hitanum og hrærið hveitinu saman við þar til deigið er orðið einn massi, kælið deigið örlítið. Setjið deigið í hrærivélarskál og bætið eggjunum út í einu í einu og hrærið vel á milli. Setjið deigið þá í sprautupoka. Klippið þá bökunarpappír tvær