Afgreiðslutími
Mánudagar 09:00-18:00
Þriðjudagar 09:00-18:00
Miðvikudagar 09:00-18:00
Fimmtudagar 09:00-18:30
Föstudagar 09:00-19:00
Laugardagar 10:00-16:00

 


 
Heilsuráðgjöf
Living Food Energy duft

Energy duftið frá Gillian McKeith er fyrsta varan sem hún framleiddi. Hún er alltaf stoltust af þessari vöru þar sem duftið hefur reynst fjölda fólks gríðarleg hjálp við að laga m.a. meltinguna, byggja upp orkubúskapinn, ná þyngdarjafnvægi og byggja sig upp eftir erfið veikindi svo eitthvað sé nefnt.

Hvað er Living Food Energy duft?
Það er samsett úr 11 tegundum af spíruðu korni, fræjum og jurtum.
33% eru quinoa (innkanjóli) og hirsi spírur sem eru mjög rík af  meltingarensímum, andoxunar ensímum, vítamínum, steinefnum, snefilefnum, ammínósýrum, blaðgrænu, fullkomnum prótínum, góðum fitusýrum og trefjum. Duftið hentar öllum og má gefa það börnum niður í 1 árs. Ráðlegt er að taka inn  vel af duftinu í byrjun t.d. 2 tsk. fyrir morgunmat og 2 tsk. fyrir hádegismat eða kvöldmat alls 4 tsk. í minnst 4 daga. Það kemur meltingunni vel af stað. Þeir sem eru að koma t.d. úr magahjáveitu aðgerð eða eru að byggja sig upp eftir erfið veikindi ættu að taka inn þennan skammt í minnst 2 vikur og síðan er 1 tsk til 2 tsk. nægjanlegt og þarf fólk ekki að taka inn önnur vítamín. Hræra má duftinu út í vatn eða ávaxtasafa þó ekki sítrussafa (appelsína- sítróna). Einnig er upplagt að blanda því út í smoothies og próteinblöndur.



Sore No More, náttúrlegt kröftugt verkjagel

Sore No More er mjög áhrifaríkt náttúrulegt verkjastillandi gel sem sannast sagna er að slá í gegn á Íslandi. Uppskriftin af þessu frábæra geli er mörg þúsund ára gömul og kemur frá Indíjánunum í Mexíkó.
Náttúrulegu plönturnar MENTHÓL – KAMFÓRA & RAUÐUR PIPAR eru virku efnin í gelinu en ásamt því eru fjöldi annarra jurta og ávaxta og má þar nefna grænt te og appelsínubörkur sem gefur gelinu frískandi og góðan ilm. Sore Nor More klístrast ekki í fatnað og því hentugt til að bera á sig hvenær sem er. Frábært á auma vöðva og liði ásamt því að vera frábært á sinabólgur, hentugt á frunsur og undir nefið ef þú ert með kvef.
Engin kemísk íblöndunar- og rotvarnarefni



Áttu við meltingatruflanir að stríða

Pro-Gastro 8 hefur verið fáanlegt á Íslandi í síðan árið 2004 og er sannkölluð himnasending fyrir meltinguna. Pro-Gastro 8 hylkin innihalda 8 tegundir af góðgerlum sem við köllum oft í daglegu tali asídófílus. Pro-Gastro inniheldur ríkulegt magna f þeim ásamt 7 öðrum nauðsynlegum góðgerlum. Snilldin á bak við Pro-Gastro 8 er að hylkin eru sýruhjúpuð sem gerir það að verkum að hylkin opnast í smáþörmunum þar sem meltingarvandamálin liggja oftast.
Færð þú stundum uppþembu eða meltingaróþægindi eftir máltíðir? Finnur þú einnig fyrir þreytu? 1 hylki af Pro-Gastro8 fyrir máltíð getur bjargað þér frá þessum leiðu óþægindum. Mælt er með 2 hylkjum fyrir stórhátíðarmáltíðum sér í lagi reyktu kjöti.
 
Eftir því sem við eldumst fækkar vinveittum bakteríum í meltingarveginum sem getur valdið ýmsum leiðum kvillum eins og uppþembu, magakrampa, harðlífi, niðurgangi ofl. meltingartruflunum.



Náttúrulega grænt te til þyngdastjórnunar

Metasys er náttúrulegt grænt te extrakt  í hylkjum og er eitt vinsælasta efnið á Íslandi til þyngdarstjórnunar og hefur einnig góð áhrif orkuúthald og vellíðan.
Metasys er einstakt efni unnið úr kjarna telaufsins með einstakri meðhöndlun, svokallaðir vatnsmeðhöndlun sem tryggir að heilnæmu katekólin tapast síður eins og þegar telaufið er þurrkað. Katekól(EGCg) er virka efnið í græna telaufinu og hafa rannsóknir sýnt fram á að ýmsa heilsufarslega ávinninga við reglulega notkun. Tekin eru inn 4 hylki á dag ef fólk ætlar að grenna sig en þeir sem sækjast eftir betra orkuúthaldi og eru kjörþyngd nægir 2 hylki á dag. Metasys hefur verið fáanlegt á Íslandi sl. 4 ár og er orðinn til fjöldi frásagna og er hægt að nálgast fjölmargar á www.metasys.is



NÝTT NÁTTÚRLEGT BYGGINGAREFNI FYRIR BRJÓSKVEFINN

NUTRILENK hefur sl.7 ár verið fáanlegt á Norðurlöndunum og hefur verið eitt mest selda efnið fyrir þá sem þjást af  verkjum í liðamótum í Noregi og Svíþjóð en þess má geta að NUTRILENK var valin heilsuvara ársins í Noregi 2004.

Hvað er NUTRILENK?                                     
NUTRILENK er frábært byggingarefni fyrir brjóskvefinn.
Aðalinnihald í NUTRILENK er náttúrulegt kodndróitín súlfat sem er mjög mikilvægt byggingarefni brjóskvefs bæði hjá mönnum og dýrum.
NUTRILENK er unnið úr sérvöldum fiskibeinagrindum aðallega úr hárkarlsbeinum sem samkvæmt rannsóknum eru rík af virku, nýtanlegu og uppbyggilegu brjóski, kollagenum og kalki fyrir mannfólk.
Til þess að gera þessi innihaldsefni virk þá er það meðhöndlað með ensím(hvata) sem smækkar stóru mólekúlin og gerir það frásogunarhæft og virkt sem frábært byggingarefni fyrir brjóskvef.
Hjá þeim sem þjást af minnkuðum brjóskvef þá getur NUTRILENK virkað verkjastillandi við liðverkjum en liðverkir orsakast oftast af rýrnun brjóskvefs í liðamótum. Einkenni minnkaðs brjóskvefs eru m.a. brak í liðamótum, þegar risið er upp, stirðleiki eða sársauki þegar gengið er niður í móti. Hver tafla af NUTRILENK inniheldur 670mg. af kondróitíni

Hverjum hentar NUTRILENK?
Þeim sem þjást af brjóskvefseyðingu í liðum og liðamótum.
Notkun: Til að byggja upp liðbrjóskið er mikið atriði að hlaða líkamann upp og taka inn 2 töflur 3 sinnum á dag í 2 til 3 vikur og minnka svo skammtinn niður í 2-3 töflur daglega eftir þann tíma. Fólk finnur gjarnan breytingu og léttir eftir ca. 10 daga en sumir þurfa allt upp í 30 daga til að finna bót. NUTRILENK fæst í tveimur sölustærðum 90 töflur og 210 töflur og er stærra glasið mun hagstæðara sem ábending til þeirra sem þurfa að nota efnið reglubundið.



Halló, halló, hrjáir þig slen og orkuleysi?

Á ekki að virkja kraftinn og koma sér form og láta verkin tala?

ORGANIC TURBO GREENS NÝTT  er nýr orkugjafi frá Gillian McKeith
Þessi nýja lífrænt ræktaða duftblanda frá Gillian er sannkölluð orku- og næringarsprengja, auðmeltanleg, glúteinlaus, prótein-, steinefna- og vítamínauðug. Innheldur 6 lífrænt ræktuð innhaldsefni: SPÍRULÍNU, BYGG-GRAS (barley grass), HVEITI-GRAS (wheat grass), AÐALBLÁBER (bilberry), EPLA- OG SÍTRÓNUBÖRK. Blandan er samansett út mjög orkugefandi-,  næringarríkum- og auðmeltanlegum  innihaldsefnum. Gillian vildi ekki hafa of margar tegundir saman í blöndunni til þess að tryggja hámarksnýtingu næringarefnanna og þar með skapast minna álag á meltingarfærin.
Nú er loksins hægt að fá bragðgott næringarduft því ORGANIC TURBO GREENS smakkast vel. Hægt er að blanda  því í safa (ekki sítrus), hristinga og smoothies. Það er svo bragðgott að það bragðast einnig vel í vatni.
Hverjum hentar að taka inn Turbo Greens?
Ætlað öllu fólki eldra en 16 ára, þeim sem eiga erfitt með að taka upp næringarefni, þeim sem stríða við orkuleysi, upplagt eldra fólki, íþróttafólki. Blandan er afsýrandi (alkalizing) fyrir líkamann og því frábær þeim sem þjást af bólgusjúkdómum. Einnig má geta þess að blandan er frábær fólki með meltingarerfiðleika og þeim sem eru að ná sér af erfiðum sjúkdómum.



Spírubrauð úr spíruðu heilu hveitikorni - saltlaus

Spírubrauðin eru ótrúlega ljúffeng. Þau eru unnin eingöngu úr spíruðu heilu hveitikorni og innihalda ekkert mjöl, ekkert ger, ekkert hveiti, ekkert lyftiduft og ekkert salt.
Spírubrauðin henta sérlega vel fyrir fólk sem vill forðast salt, því salt er í flestum öðrum brauðum. Þau eru einnig góð fyrir flesta sem þola ekki glúten, því þegar hveitikorn spírar, hverfur næstum allt glútenið úr því.
Spírubrauðin fást í nokkrum tegundum, hreint og með rúsínum, rúsínum og gulrótum og með sólblómafræjum.
Hægt er að gera ljúffeng buff úr hreinu spírubrauðunum, með því að skera þau niður, velta upp úr krydduðum raspi og léttsteikja á pönnu, Ódýr og fljótlegur matur.



Náttúrulega unnar lífrænar olíur frá Rapunzel

Mikilvægi þess að nota góðar olíur er nú orðið flestum ljóst. Það sem skiptir máli við olíuframleiðslu er að sjálfsögðu fyrsta flokks hráefni, en einnig vinnsluferlið sjálft.
Í venjulegri olíuframleiðslu eru notuð alls kyns aukefni og hjálparefni við framleiðsluna.
Rapunzel framleiðir hágæða jurtaolíur og eins og allar vörur frá Rapunzel nota þeir einungis lífrænt hráefni í allar sínar vörur.
Hörfæolían frá Rapunzel er þekkt fyrir gæði.
Hörfæolía er sérlega viðkvæm fyrir ljósi og súrefni og þess vegna er Rapunzel hörfræolían framleidd í lokuðu ferli þar sem súrefni kemst ekki að. Hún er innsigluð þannig að súrefni kemst ekki að henni fyrr en flaskan er opnuð.
Þetta tryggir neytandanum fyrsta flokks gæði.
Mikilvægt er fyrir neytandann að vita að til að hún haldist fersk í nokkrar vikur eftir opnun er nauðsynlegt að geyma hana í kæli.



Náttúrulegar hreinlætisvörur sem hlífa náttúrunni

Sonett hreinlætisvörurnar hlífa náttúrunni. Þær brotna hratt niður náttúrunni, 100% niðurbrot, ekkert minna dugar.
Sonett hreinlætisvörurnar eru allar unnar mikið til úr lífrænt ræktuðu hráefni og innihalda engin efni sem eru skaðleg umhverfinu eða líkamanum.
Ilmurinn í þeim er unnin úr náttúrulegum ilmkjarnaolíum.
Fljótandi þvottalögurinn sem inniheldur lífræna lavendelolíu gefur þvott sem ilmar af lykt sem líkist lykt af þvotti sem hefur hangið úti.
Sérlega góðar hreinlætisvörur fyrir börn og fólk með viðkvæma húð.



Mikið úrval af lífrænum teum frá Clipper

Í Clipper línunni eru te fyrir alla, unga sem aldna. Þar er hægt að velja um venjulegt svart te, grænt te, hvítt te og jurtate.
Margir þekkja græna teið fyrir það hversu mikið er af ancoxunarefnum í því og hve mikla orku það gefur. Færri þekkja hvíta teið, en það er mildara á bragðið en græna teið og inniheldur minna koffein. En hvíta teið inniheldur þrisvar sinnum meira af andoxunarefnum heldur en græna teið. Svo eru það öll jurtatein. Þau innihalda ekkert koffein og henta því öllum, einnig börnum. Sum eru frískandi önnur róandi. Sérlega ljúffengt og gott svefnte er blandan af kamillu og lavendel. Lakkrísrótarteið er gott að nota eitt og sér eða til að nota með öðrum teum til að gefa sætt bragð án sykurs.



Isola-Bio lífræn jurtamjólk í úrvali

Mjólkin frá Isola-Bio er sérstaklega ljúffeng og holl. Hægt er að fá mjólk úr rís, höfrum, spelti og soja.  Tekið er sérstaklega fram á umbúðum að mjólkin sé unnin úr heila korninu, þ.e. ekki einungis úr kjarnanum.  Það er mjög mikilvægt því í hýðinu eru flest steinefnin og snefilefnin, sem eru svo mikilvæg fyrir heilsuna.   Þær tegundir sem eru kalkbættar innihalda náttúrulegt kalk unnið úr sjávarþangi.  Það er því sérlega auðupptakanlegt fyrir líkamann.



Ferskpressaðir lífrænir safar og þykknisafar frá Yggdrasil

Mikið úrval af hreinum lífrænum ávaxta- og grænmetissöfum stútfullir af náttúrulegum næringarefnum.  Fersku safarnir eru bragðmiklir og má neyta þeirra beint úr flöskunni en einnig er gott að þynna þá með vatni.  Ávaxtasafa er hægt að nota til að gera frostpinna fyrir börnin.
Þykknisafarnir eru mjög þægilegir. Þeir eru eins og síróp og er hægt að nota þá sem ávaxtasósur í deserta, eða til að bragðbæta t.d. hreina lífræna jógúrt.  Þá erum við komin með sykurlausa  jógúrt með ávaxtabragði.  Þykknisafarnir eru blandaðir með vatni 1:7 .  Perusafinn er sérstaklega góður að nota sem fyrsta safa fyrir litlu börnin frá 4 mánaða.  Þá er hann þynntur meira út 1:12 þannig að hann er mjög mildur.
Beutelsbacher hefur framleitt lífræna ávaxtasafa í meira en 70 ár. Margir af söfunum þeirra bera demeter vottunarmerkið, en það stendur fyrir lífræna-dýnamíska ræktun, en það eru allra bestu lífrænu gæðin.



Lífræn gæði fyrir barnið

Holle barnamatur – lífræn demeter gæði
Áratuga reynsla í framleiðslu á barnamat úr fyrsta flokks lífrænt ræktuðu hráefni tryggja barninu þann allra besta barnamat sem hægt er að fá. Grautarnir eru unnir úr heila korninu á mildan hátt þannig að öll mikilvæg næringarefni kornsins fari ekki til spillis. Grautarnir eru fyrir börnin frá 4 mánaða. Holle býður einnig upp á úrval af grænmetis- og ávaxtamauki fyrir börn frá 4. mánaða. Fyrir börn sem einhverra hluta vegna geta ekki fengið brjóstamjólk þá býður Holle upp á þurrmjólk úr fyrsta flokks lífrænni mjólk.
Ábending: Gott sætuefni í grauta fyrir börnin er rófusíróp, peruþykknisafi eða hlynsíróp.



Lífræn ræktun, betri heilsa.

Við lífræna ræktun er hvorki notað skordýraeitur né tilbúinn áburður. Þetta leiðir til umhverfisvænni ræktunar, betri heilsu og betra bragðs.Heilsa býður upp á fjölbreytt úrval af lífrænt ræktaðri matvöru frá Gut & Gerne, einum virtasta framleiðanda í Evrópu á sínu sviði. Allar vörurnar eru lífrænt vottaðar af Evrópusambandinu og hafa unnið til fjölmargra verðlauna.



Naturgreen Soya mjólk

Ofnæmi og óþol gagnvart ákveðnum fæðutegundum eru vaxandi vandamál í heiminum. Margir finna fyrir óþægindum við neyslu á laktósa (mjólkursykurs) eða mjólkurvörum, en óþol fyrir mjólkursykri og glúteini eru tvö algengustu óþolin sem fólk stríðir við í dag.

Naturgreen soya lífrænu vörurnar eru einstakar að gæðum og eru aðlagaðar að mismunandi þörfum neytenda. Þær innihalda agave sætuefni og eru því kjörnar fyrir fólk sem getur ekki eða vill ekki neyta sykurs (sykrósa).

Naturgreen soya vörurnar eru einstaklega góðar til drykkju hvenær sem er dagsins, hvort sem er einar sér, út í kaffið eða teið.

Naturgreen Soya Calcium er bætt með kalki úr sjávarþangi sem er einstaklega kalsíumríkt. Eitt glas (250ml) gefur 300mg af kalsíum, en það er 37,5% af ráðlögðum dagskammti.

Prófaðu líka Naturgreen Soya Omega 3 mjólkina, sem er með viðbættri hamp olíu og Naturgreen Soya Woman, sem er bætt með ísóflavónum, en það virkar á estrógennema í líkama fólks og rannsóknir hafa bent til að það geti minnkað hættu á hormónatengdum krabbameinum (t.d. brjóstakrabbameinum og blöðruhálskrabbameinum) og einnig hafi það áhrif til lækkunar á háu kólesteróli. Soya ísóflavónar hafa verið notaðir við hitakófum hjá konum á breytingaraldri og eru taldir virka verndandi fyrir æðar, tempra blóðsykur og styrkja bein.

Naturgreen soya vörurnar eru:
-100% mjólkurlausar, án laktósa
- kólesteról lausar
-glútein og hveitifríar



Babynat – lífræn matvæli fyrir litla kroppa

Fram að þriggja ára aldri eru börn viðkvæm fyrir mengun og meindýraeitri. Líkaminn er ekki nógu þróaður til að skilja eiturefnin í burtu.

Í lífrænni framleiðslu eru ekki notuð eiturefni eða tilbúinn áburður. Matvæli úr lífrænni framleiðslu eru því það hreinasta sem þú færð handa barninu þínu.

Framleiðendur „babynat“ línunnar hafa í gegnum tíðina hlotið fjöldann allan af viðurkenningum fyrir framúrskarandi framleiðslu á matvælum fyrir börn og til að tryggja sem besta útkomu er ónauðsynlegum innihaldsefnum sleppt. Krukkumaturinn er t.d. án viðbætts sykurs, salts eða þykkingarefna. Þar að auki notar Babynat ekki þekkta ofnæmisvaka (eins og t.d. kiwi og sellerí) í vörur sínar.

í Babynat línunni færðu þurrmjólk, þurrgrauta, krukkumat og gómsætt róandi kex með appelsínubragði fyrir börn sem eru að taka tennur.



Biotta grænmetis- og ávaxtasafar

Allir Biotta lífrænir grænmetis- og ávaxtasafar eru framleiddir úr lífrænt ræktuðu hráefni.
Notkun tilbúins áburðar og eiturefna hefur verið stranglega bönnuð á ræktunarsvæði Biotta svo áratugum skiptir. Því er Biotta hráefnið ræktað í heilsusamlegum jarðvegi. Ein af áherslum Biotta er að vinna safa úr ávöxtunum og grænmetinu strax eftir að það er uppskorið til að varðveita sem mest af næringarefnunum.
Markmið Biotta er að standa fyrir góðri heilsu og lífsþrótti með hágæða lífrænt ræktuðum vörum
og slagorð þeirra er: „ferskt frá akrinum í flöskuna”. Njóttu þess að drekka í þig ferskleikann úr Biotta flöskunum!



Nauðsynlegar fitusýrur

Kvöldvorrósarolía (Efamol)
Efamol er ensk skammstöfun á Essential Fatty Acid Molecule (nauðsynlegar fitusýrur). Þetta eru fitusýrur sem líkaminn verður að fá úr fæðunni og eru því „nauðsynlegar“. Kvöldvorrósarolía gengur einnig undir nafninu náttljósaolía. Ótal rannsóknir hafa verið gerðar á olíunni. Rannsóknirnar leiddu í ljós að hún gagnaðist við mismunandi kvillum eins og t.d. exemi, fyrirtíðaspennu, ofvirkni, síþreytu, hárlosi, ófrjósemi (einkum hjá körlum) og liðagigt.

Efalex gegn lesblindu og ofvirkni
Efalex er einstök blanda af fiskolíum og hreinni kvöldvorrósarolíu. Þannig fæst æskileg blanda af omega-3 og omega-6 fitusýrum. Þessar fitusýrur eru stundum skammstafaðar DHA (DocosaHexaenoic acid), EPA (EicosaPentaenoic Acid), GLA (Gamma-Linolenic Acid) og AA (Arachidonic Acid) og gegna mikilvægu hlutverki í starfsemi heilans og augnanna. Hæfilegt magn af þessum fitusýrum í líkamanum stuðlar að skarpari hugsun og aukinni einbeitingu sem þýðir að hæfileikar okkar til þess að læra aukast. Rannsóknir leiddar af Purudue University hafa sýnt að ákveðin samsetning fitusýra leikur lykilhlutverk þegar kemur að skýrri hugsun, hæfileikum okkar til þess að læra og samskiptum okkar við aðra. Efalex getur dregið úr einbeitingaskorti og lesblindu.
Þá hafa niðurstöður rannsókna einnig leitt í ljós að efalex geti reynst vel hjá börnum sem eiga við ofvirkni eða annars konar hegðunarvandamál að etja en slíkir kvillar kunna að stafa í einhverjum mæli af ónógu magni af fitusýrum í fæðu.



Kvennablómi til að takast á við breytingaskeiðið

Kvennablómi er náttúrlega leiðin til að takast á við breytingaskeið kvenna. Hormónameðferðir hafa verið taldar áhættusamar og jafnvel valdið alvarlegum sjúkdómum.

í Kvennablóma eru sérvaldar jurtir sem hafa sýnt að hjálpi til við að draga úr einkennum breytingaskeiðsins.



Solaray vítamín gæði í gegn

Einstök gæði og vöruþróun hefur fært Solaray framúrskarandi orðspor. Viðhorf fyrirtækisins er að vera leiðandi en ekki eingöngu við að þróa nýjar og betrumbættar vörur heldur líka til að tryggja að áhrifaríkustu aðferðunum við framleiðslu og gæðaeftirlit sé beitt. Vinnuaðferðir Solary við gæðaeftirlit tryggja merkinu yfirburðagæði á öllum vörum sem þeir framleiða. Það felst í því að eingöngu albesta hráefnið sem fáanlegt er á markaðnum í heiminum í dag er notað í blöndurnar. Farið er fram á greiningarskírteini og upprunavottorð frá hverjum einasta birgja til þess að tryggja hreinleika framleiðslunnar. Allt hráefni sem notað er fer svo í gegnum rannsóknir á rannsóknarstofum Solaray og kannað er hvort þau hafi rétta virkni, hvort í þeim séu eiturefni eða aukaefni sem geta eyðilagt virknina, eða hvort að ekki sé um hárréttu efnin sé að ræða. Nýlega var t.d. tekin í notkun geislavirknismælir til þess að kanna hvort jurtirnar hafi verið ræktaðar með geislum. Ef í ljós kemur að eitthvað er að vörunni er hráefnið endursent hið snarasta og það rannsakað sérstaklega vel þegar næsta sending kemur frá sama birgja. Engar vörur eru sendar frá Solaray til smásala
eða neytenda nema að þær hafi staðist allar gæðaprófanir. Þetta þýðir að engin mistök komast í gegnum gæðaeftirlit Solaray sem er það öflugasta í heilsuvöruheiminum í dag.



Yogi Te , vísidómur frá Indlandi

Eins og þið getið ímyndað ykkur þá er alvöru Yoga gúru á bakvið Yogi te. 1969 Byrjaði Yogi Bajhan að kenna Kundalini Yoga í Bandaríkjunum, hann deildi með öðrum fornum vísdómi Ayurveda og heilbrigðum lifnaðarháttum sem hann hafði lært í Indlandi. Eftir hverja kennslustund gaf hann nemendum sínum sérstakt kryddað te sem hann blandaði sjálfur til heilunar, nemendurnir kölluðu þetta með mikilli virðingu “Yogi Tea”.
Yogi te skuldbindur sig til að nota eingöngu besta mögulega hráefni sem einnig verndar auðlindir jarðarinnar. Jurtirnar og kryddin sem við notum eru ræktuð í lífrænu umhverfi hvar sem því er við komið. Enn þann dag í dag þá höfum við haft möguleika til að rækta öll 63 hráefnin sem við notum í tein okkar Lífrænt og erum stolt af því að geta sagt að okkar te eru 100 % lífræn.
Yogi tein okkar bjóða uppá te fyrir allar árstíðir, meltinguna, slökunina, hreinsunina og orku gefandi.
Kvenna tein okkar henta konum á öllum lífskeiðum þeirra. Allar þessar áhrifaríku blöndur eru hannaðar til að koma á jafnvægi á líkamann og styðja við þarfir kvenna við, styrkingu, líkamsræktina, slökun og jafnvægi.

Ævafornar jurtablöndur,grundvallaðar á samsetningum sem eiga rætur að rekja til Ayurveda fræðanna, beturþekkt sem „fræði lífsins“ og hvetur tilheildræns lífsstíls, eflingar góðrar heilsu,náttúrulegrar fegurðar og farsældar. Frábærar 100% lífrænar jurtablöndur bragðið er alveg ekta,ljúft, beiskt og sefandi. Búið að vera á markaði í 39 ár.



Þú færð lífsnauðsynlegar fitusýrur úr Udo´s Choice

Udo's choice 3•6•9 olíublandan er fullkomin blanda af lífsnauðsynlegum fitusýrum.
Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á jákvæða eiginleika þeirra fyrir heilsu okkar. Udo’s 3•6•9 olíublandan er sérvalin blanda náttúrulegra, óunninna,lífsnauðsynlegra fitusýra. Í fitusýrum er að finna tvo undirstöðuþætti sem eru okkur lífsnauðsynlegir á sama hátt og prótín, kolvetni, vítamín og steinefni.

Omega fitusýrur byggja upp ónæmiskerfið á marga vegu og hafa áhrif á:

Hjarta og æðakerfi
Kólestról í blóði
Blóðþrýsting
Liði
Orkuflæði líkamans
Minni og andlegan líðan
Námsárangur
Þroska heila og miðtaugakerfi fósturs á meðgöngu
Rakastig húðar


Maldon lífrænt salt
Það er ekki neitt salt sem kemur í staðinn fyrir Maldon salt, það er eitt þekktasta merkið  á markaðnum. Þessar kristal löguðu flögur eru algjörlega náttúrulegar án allra aukaefna sem gefur Maldon Sjávarsaltinu sérstöðu með þessarri einstöku áferð og bragði. Maldon sjávarsalt er uppáhald hjá fólki sem hugsar um heilsuna og sælkerakokkum.

Maldon lífrænn svartur pipar
Heil svört piparkorn handtýnd í Suður Indlandi, sem er svæði sem er þekkt fyrir að rækta heimsins besta pipar. Til að viðhalda ferskleikanum eru sólþurrkuð piparkornin pökkuð í þægilegar umbúðir ,líkt og Maldon saltið



Barnamatur

Fyrstu mánuðirnir í lífi hverrar manneskju eru gífurlega mikilvægir því þá er grunnurinn að góðri heilsu lagður fyrir lífstíð. Góð næring frá fæðingu hefur jákvæð áhrif á andlega og líkamlega líðan barna og gefur þeim hráefni til að byggja upp sterkan líkama og mynda þannig grunn að góðri heilsu síðar meir.

Sem betur fer er orðið auðvelt að nálgast barnamat sem unnin er úr lífrænu hráefni og úrvalið hefur aukist jafnt og þétt. Það njóta t.d. ekki öll börn móðurmjólkurinnar en það þarf ekki að örvænta vegna þess því hægt er að fá gæða þurrmjólk handa barninu í Fræinu. Þar fæst einnig úrval hollra grauta sem gerðir eru úr lífrænu hráefni, auk krukka með maukuðu grænmeti, ávöxtum og fleiru.

Barnamatur sem gerður er úr lífrænu hráefni er laus við öll aukaefni, sem þýðir að í hann ratar ekki skordýraeitur né kemískur áburður og hann er ekki genabættur. Hann er því afar hollur ungviðinu.

Börn hafa ekkert val um það sem þau borða, því er það okkar hlutverk að gæta þess



Veistu hvernig má minnka neyslu hvíts sykurs?

Nú orðið vita allir að hvítur sykur er óhollur en færri vita að það er lítið mál að minnka neyslu hans. Það þarf enginn á hvíta sykrinum að halda og hann er í raun óþarfur í allri matargerð í dag. Það er nefnilega til mikið úrval af náttúrulegri sætu sem hægt er að nota í staðinn og þá gildir einu um hvers konar matargerð ræðir. Það má t.d. skipta hvíta sykrinum út fyrir hrásykur en hann inniheldur næringu, vítamín og steinefni sem búið er að hreinsa úr þeim hvíta svo eftir standa aðeins tómar næringarsnauðar hitaeiningar. Ef þú ert að neyta sykurs á annað borð er þá ekki um að gera að neyta sykurs sem nýtist líkamanum betur og gefur honum næringu, vítamín og steinefni.

Það eru líka til margir aðrir valkostir við hvíta sykurinn, t.d. síróp sem unnið er úr korni eða ávöxtum svo ekki sé minnst á þurrkaða ávexti og hunang. Það hafa margir komist upp á lagið með að nota hunang í bakstur og matargerð í stað sykurs, enda er það afar ljúffengt.

Þetta má líka færa yfir á laugardagsnammið því það eru til aðrir valkostir við bland í poka. Í öllum stórmörkuðum fást nú alls kyns hnetur og fræ en vissir þú að t.d. kasjúhnetur er bæði sætar og góðar? Þá er tilvalið að smakka ýmsar tegundir af hnetum og finna þær sem manni líkar og blanda svo saman við þurrkaða ávexti eins og rúsínur, papaya og ananas. Þetta er ekki mikið hitaeiningasnauðara en venjulegt sælgæti en hins vegar miklu hollara og sneysafullt af góðum efnum og má því í raun borða án samviskubits.



Af hverju te?

Það er hægt að velja um aragrúa tegunda af jurtatei, ávaxtatei og svörtu tei. Það vita ekki allir hve marga eiginleika te hefur, enda er te-menning ekki mjög mikil á Íslandi. Það er í raun synd og skömm því að það eru til svo margar tegundir af heilsubætandi tei. Te getur t.d. hæglega komið í staðinn fyrir kaffi vegna þess að til er fjöldi tegunda af tei sem inniheldur koffein, það er því ekki svo erfitt að minnka kaffidrykkjuna. Það er svarta teið sem inniheldur koffein en til eru margar tegundir af svörtu tei og oft mikill bragðmunum á milli tegunda. Auðveldasta leiðin til að byrja að drekka te er hins vegar að byrja á ávaxtateinu því það er sætt og því oft eins og sælgæti á bragðið, ekki síst ef hunangi er bætt við.

Það te sem hefur jákvæðustu virknina og bestu áhrifin er hins vegar jurtateið. Það er oft samsett úr fjölda jurta sem hafa mikla virkni og innihalda andoxunarefni og fleiri heilsusamleg efni fyrir líkamann. Til dæmis er grænt te mjög ríkt af andoxunarefnum og ef meltingin er slæm kemur minta, fennel eða kamilla oft að miklu gagni. Kamillute er líka róandi og gott að drekka á kvöldin eftir annasaman dag því það undirbýr líkama og sál fyrir svefninn. Það er líka einfalt að finna te sem hjálpar til við að ráða við ýmsa kvilla því blöndurnar eru mjög oft nefndar eftir virkni jurtanna, t.d. meltingarte, afeitrunarte, orkute, slökunarte o.fl.
Nú er því kominn tími fyrir te.



Hefurðu lítinn tíma en vilt hollan mat?

Fólk hefur oft afar lítinn tíma og vilja margir helst ekki þurfa að eyða miklum tíma í matargerð, ekki síst ef sinna þarf börnum eftir vinnu og líkamsrækt. Það er því gott að vita til þess að hægt er að fá fjölbreytt úrval af hollum mat sem fljótlegt er að elda en er án aukaefna. Í Fræinu fæst gott úrval af ljúffengum sósum sem gerðar eru úr lífrænt ræktuðu hráefni og innihalda engin aukaefni eins og MSG (monosodiumglutamat) eða E-621. Þær má hita upp, skella yfir soðið pasta og maturinn er til!

En það fást einnig hollar pizza sósur auk ýmissa tegunda af austurlenskum sósum. Þær síðastnefndu má t.d. nota á þann hátt að frosið grænmeti er keypt, því skellt á pönnuna í 8 mín, sósan svo sett yfir og þá er kominn hollur kvöldmatur á örstuttum tíma. Einnig er hægt að fá hollar pakkasúpur úr lífrænt ræktuðu hráefni sem er án aukaefna, og þá er einnig kominn góður kvöldmatur.

Hafi fólk hins vegar meiri tíma má einnig fá grunninn að sósum og súpum úr lífrænu hráefni, t.d. súpukraft og hakkaða tómata eða tómatþykkni. Þess má líka geta að einn af göldrunum í ítalskri matargerð er notkun á hreinu hráefni, t.d. hreinum hökkuðum tómötum í pastasósur. Ástæðan er einfaldlega sú að viðbættur sykur, sem allt of oft er að finna í dósum sem eiga aðeins að innihalda niðursoðna tómata, hefur ekki góð áhrif á bragð sósunnar þegar hún er látin malla.
Það sem þó er best við þessar sósur er að þær eru einstaklega bragðmiklar og ljúffengar, enda er lífrænt hráefni iðulega bragðmeira en annað og afar gott.