Fræið í Fjarðarkaupum var formlega opnað á þrítugasta afmælisári Fjarðarkaupa, árið 2003. Þegar verslunin var sett á laggirnar á sínum tíma var markmiðið að vera með fjölbreytt úrval nýlenduvara en vera jafnframt með lágt vöruverð. Verslunin hefur haldið þessu markmiði og kemur ávallt vel út í samanburðarkönnunum. Með opnun Fræsins var riðið á vaðið með heilsuvörur til þess að geta boðið sívaxandi hópi viðskiptavina, sem annt er um heilsuna, þess konar vörur á aðeins lægra verði.
Áhugi á lífrænt ræktuðum vörum eykst með degi hverjum hér á landi og eru margar ástæður fyrir því. Fólk er orðið meðvitaðra um umhverfismál, heilsu og áhrif skaðlegra efna á líkamann auk þess sem ofnæmi er orðið algengara og því fleiri sem beinlínis þarfnast vara sem eru án aukaefna, litarefna og annarra óæskilegra efna.
Fræið er sett upp sem sérverslun innan Fjarðarkaupa eða einskonar búð í búð svo einfalt sé að versla. Með þessu móti þarf engin að leita sérstaklega meðal annarra matvara að því sem flokkast sérstaklega undir lífrænt ræktaða matvöru eða heilsusamlegri fæðu, þetta gerir fólki sem veit hvað það vill auðvelt að koma við og grípa það sem það vantar. Hinir sem eru að fikra sig áfram í átt að bættri heilsu þurfa heldur ekki að afla sér mikilla upplýsinga fyrirfram né hafa mikið fyrir því að breyta mataræðinu til hins betra.
Í Fræinu fæst mikið úrval af alls kyns heilsuvörum og matvöru úr lífrænt ræktuðu hráefni. Meðal þess sem fá má í fræinu er alls kyns barnamatur, lífrænt ræktað korn og mjöl, spelt, heilveiti- og speltpasta, tilbúnar súpur og sósur úr lífrænu hráefni, te, fæðubótarefni, vítamín og margt fleira.
Sjá upplýsingar um ýmsar heilsuvörur hér.


